Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Qupperneq 5

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Qupperneq 5
vitund. Fáum myndi detta í hug að bera upp á granna sinn að hann væri þjófur og krefjast þess að hann afsannaði það að öðrum kosti. „Muntu vera ekki aðeins manndrápari og þjófur heldur einnig hinn versti maður“ er Jón Marteinsson látinn segja við nafna sinn Hreggviðsson í íslandsklukkunni. Vafasamt er að Marteinsson hafí látið sér til hugar koma að nafna hans bæri afsanna þessa full- yrðingu vildi hann ekki við hana una, þótt lítið sé að sjálfsögðu um það vitað. Síðastliðið sumar birtist frétt í einu dagblaðanna í tilefni af því að kveðinn hafði verið upp sýknudómur í nauðgunarmáli og bar fyrirsögnina „Stígamóta- konur um sýknudóm héraðsdóms í nauðgunarmáli: Algjört skilningsleysi dómsvalda“. I fréttinni segir m.a.: Fyrir nokkrum árum settu Stígamótakonur fram hugmynd sem þær kölluðu öfuga sönnunarbyrði, það er að ákærðir nauðgarar þyrftu að sanna að þeir hefðu ekki verið að verki, ólíkt því sem er í dag þar sem meint fórnarlömb þurfi að sanna að þeim hafi verið nauðgað. "Með því að benda á þessa leið vorum við jafnframt að segja að til væm margar aðrar leiðir en endilega sú leið sem farin hefur verið. Við vomm í raun að biðja um að þessi mál væm skoðuð og endurmetin, hvort það væri mögulegt að sönnunarbyrðin lægi ekki eingöngu hjá þolanda. Hún eða hann - því við vitum að körlum er líka nauðgað - er aðalvitni í eigin máli“. Nú skal það sérstaklega tekið fram hér að óumdeilt má telja að kynferðisbrot eru einhver alvarlegustu afbrot sem framin eru og eins það að sá sem fyrir brot- inu verður ætti að eiga rétt á allri þeirri hjálp sem hægt er að láta í té. Það er vel skiljanlegt að þeim, sem em að hjálpa brotaþolum ár og síð, og em sannfærðir um að brot hafi verið framið, hitni í hamsi þegar ákæmvaldinu tekst ekki að færa fram sannanir sem nægja til sakfellingar. Það breytir þó ekki því að hér er bryddað á tillögum sem virðast þess efnis, þótt ekki séu þær skýrar, að til athugunar komi að snúa sönnunarbyrði við í þessum brotaflokki, a.m.k. að leggja hana að einhverju marki á meintan brotamann. Ef tillögur af þessu tagi fengju byr undir báða vængi er erfltt að sjá hvar það flug gæti endað, en ekki er ólíklegt að það yrði með hinni verstu brotlendingu. Það er alveg víst að hér þarf að fara með hinni mestu gát. 247
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.