Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 6
Hjördís Björk Hákonardóttir
er héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
Hjördís Björk Hákonardóttir:
UM NÁTTÚRURÉTT
Óhætt er að fullyrða að náttúruréttur eigi talsverð ítök bæði í verkum lög-
spekinga í samtímanum og hafi áhrif á túlkun og beitingu laga. Þetta kemur fram
á ýmsum sviðum. Allir hafa til dæmis hugmynd um að mannréttindi séu mikil-
væg. Mannréttindi einstaklinga njóta vemdar í stjómarskrám rikja og binda
þjóðríki í alþjóðlegum sáttmálum. Menn gera ýmsar kröfur í nafni mannréttinda,
allt frá því að vera ekki hnepptir saklausir í fangelsi til þess að eiga kost á mennt-
un og heilsugæslu. Það er því eðlilegt að spurt sé hvaðan höfum við þessa
hugmynd um réttindi sem mönnum beri skilyrðislaust í krafti þess eins að vera
menn? Svarið felst í meira en tvö þúsund ára gamalli hefð sem er nefnd „nátt-
úruréttur". Það er markmið þessarar greinar að segja lauslega frá þeirri hefð.1
HVAÐ ER NÁTTÚRURÉTTUR?
Náttúmréttur er kenning um eðli laga. Menn hafa frá örófí alda reynt að svara
spumingum eins og 'hvað era lög'?, 'hvað era gild lög'?, 'hvað er réttlæti'?, 'hvað
réttlætir lög'? og 'hvað gerir lög bindandi'? Slíkum spumingum má svara á grand-
velli náttúraréttar. En náttúraréttur lýsir einnig tilteknum flokki siðferðilegra
meginreglna, sem taka til allra manna. Kjami kenningarinnar um náttúrarétt er að
til séu algild, eilíf og augljós gildi og um þau fjalli vissar hlutlægar siðferðilegar
meginreglur. Tilvist þeirra „leiði af‘ eða sé „hluti af‘ gerð alheimsins og þær
verði uppgötvaðar eða kallaðar fram af skynsemi mannsins. Þetta sé svo vegna
þess að mannleg breytni eða þær reglur sem henni stjóma, um gott og illt, rétt og
1 Ég vil þakka vinum mínum Þorsteini Gylfasyni prófessor og Mikael Karlssyni dósent fyrir
yfirlestur og góðar ábendingar. Svavar Hrafn Svavarsson fornfræðingur og Eyjólfur Kjalar
Emilsson prófessor gáfu einnig góð ráð.
248