Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Page 33
Ákvæði milliríkjasamninga sem ísland er aðili að ganga þó framar ofan-
greindu lagaákvæði.
I 3. mgr. sömu lagagreinar er sérákvæði varðandi lögsögu þegar ágreiningur
um forsjá er hluti af hjúskaparmáli en þá gilda reglur samkvæmt hjúskaparlög-
um um lögsögu og vamarþing. Um forsjárþáttinn verður að gæta lagaákvæða
VIII. kafla barnalaga sem fjallar um dómsmál vegna ágreinings um forsjá
bama. Þá er einnig sérregla í 4. mgr. 56. gr. barnalaga en samkvæmt henni getur
íslenskur dómstóll, ef alveg sérstaklega stendur á, leyst úr kröfu um forsjár-
skipan til bráðabirgða ef stefndi eða bamið dvelst hér á landi.
Vamarþingsreglur em í 115. gr. hjúskaparlaga en þar segir að mál skuli höfða
á heimilisvamarþingi stefnda en ef stefndi á ekki heimilisvarnarþing hér á landi
skuli mál höfða þar sem stefnandi á heimilisvamarþing. Þó geta aðilar samið
um annað vamarþing.
Faðernismál má höfða á heimilisvarnarþingi móður eða varnaraðila sam-
kvæmt 1. mgr. 42. gr. bamalaga. Ef móðir á ekki vamarþing hér á landi má
höfða mál á vamarþingi vamaraðila eða því varnarþingi sem hann átti síðast hér
á landi ef hann er farinn af landi eða ókunnugt er hvar hann er niður kominn
eða á varnarþingi þar sem með bú hans er farið, sbr. 2. mgr. 42. gr. bamalaga.
Ef ekki er til að dreifa varnarþingi samkvæmt ofangreindu má höfða mál á
varnarþingi bams eða fyrir öðrum dómstóli hér á landi samkvæmt ákvörðun
dómsmálaráðuneytisins.
Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. barnalaga skal höfða dómsmál vegna ágreinings
um forsjá barns á heimilisvamarþingi þess eða á heimilisvamarþingi stefnda að
öðrum kosti. Ef hvomgt þeirra á heimilisvarnarþing hér á landi má höfða mál á
heimilisvarnarþingi stefnanda. Ef ekki er til að dreifa vamarþingi samkvæmt
ofangreindu skal höfða mál fyrir dómstóli sem dómsmálaráðuneytið kveður á
um.
í 116. gr. hjúskaparlaga eru reglur um aðild í hjúskaparmálum en þar kemur
fram að annað hjóna og það eitt getur höfðað hjúskaparmál. Mál til ógildingar
á hjúskap samkvæmt 9. og 11. gr. má þó höfða af dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu eða öðra hvom hjóna, sbr. 2. mgr. 116. gr. hjúskl. Ef ógilding er reist á
ákvæði 11. gr. er málshöfðun einnig heimil því hjóna úr eldra hjúskap sem tví-
kvænishjúskapur gengur í berhögg við.
Samkvæmt 43. gr. bamalaga er sóknaraðili faðernismáls móðir barnsins eða
barnið sjálft. Varnaraðili er sá maður eða þeir menn sem eru taldir hafa haft
samfarir við barnsmóður á getnaðartíma barns en ef varnaraðili er látinn má
höfða málið á hendur dánarbúinu. Mál til vefengingar á faðemi barns geta eig-
inmaður móður eða sambýlismaður hennar höfðað, móðirin, barnið sjálft eða
lögráðamaður þess, sbr. 1. mgr. 52. gr. bamalaga. Ef eiginmaður eða sambýlis-
maður móður er látinn getur sá erfingi hans sem gengur jafnhliða eða næst
barninu að erfðum höfðað vefengingarmál. Aðild að málssókn í málum til
ógildingar á faðernisviðurkenningu á sá sem hefur viðurkennt faðerni barnsins,
móðir þess og barnið sjálft, sbr. 2. mgr. 53. gr. bamalaga.
275