Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Page 34
E. Heimilt er að skipa málsvara og skipa má barni talsmann
Samkvæmt 2. mgr. 117. hjúskl. er dómara heimilt í ákveðnum tilvikum að
skipa vamaraðila málsvara en það er þegar hvorki er vitað um heimilisfang né
dvalarstað stefnda. Sama gildir þegar stefndi er búsettur eða dvelst erlendis og
ekki tekst að birta honum stefnu eða hvorki hann né umboðsmaður hans sækir
þing við þingfestingu máls og sérstakar ástæður mæla að öðru leyti með því að
honum verði skipaður málsvari.
Þá má skipa barni talsmann til að gæta hagsmuna þess við úrlausn forsjármáls
ef sérstök þörf er á því, sbr. 5. mgr. 34. gr. barnalaga. í greinargerð með frum-
varpi laganna kemur fram að talsmaður barns geti t.d. verið fagmaður á sviði
sálfræði, barnageðlækninga eða félagsráðgjafar sem hefði það hlutverk að veita
bami er verður bitbein foreldra í sérstaklega erfiðum forsjárdeilum liðsinni sitt
ef úrlausnaraðili, þ.e. dómari eða dómsmálaráðuneyti, telur barninu brýna þörf
á stuðningi vegna málarekstursins.
Samkvæmt 45. gr. barnalaga eiga móðir og bam ef það er sóknaraðili fað-
ernismáls kröfu á liðsinni barnaverndarnefndar á meðan málið er til meðferðar
eftir því sem dómari telur þörf á.
F. Sáttahlutverk dómara
Aður en skilnaður er veittur skal dómari reyna að koma á samkomulagi milli
hjóna um skipan forsjár fyrir bömum um framí'ærslueyri og aðra skilnaðarskil-
mála, sbr. 1. mgr. 43. gr. hjúskl. og 59. gr. barnalaga. í 2. mgr. 59. gr. bamalaga
segir að dómari geti ákveðið að sáttatilraun í stofnun um fjölskylduráðgjöf
komi í stað sáttaumleitana dómara að nokkru eða öllu.
G. Málshöfðunarfrestir
Samkvæmt 2. mgr. 52. gr. bamalaga skal höfða mál til vefengingar á faðemi
bams innan eins árs frá því að sóknaraðili fékk vitneskju um atvik sem getur orðið
tilefni til að vefengja faðemi en þó eigi síðar en innan fimm ára frá fæðingu
bamsins. Ef eiginmaður eða sambúðarmaður móður er látinn, en málshöfð-
unarfrestur þó ekki liðinn, getur sá sem gengur jafnhliða eða næst baminu að
erfðum eftir hinn látna höfðað vefengingarmál innan sex mánaða frá því að hann
fékk vitneskju um fæðingu bamsins og dauða eiginmannsins eða sambúðar-
mannsins. Þessir tímafrestir gilda þó ekki þegar bamið höfðar mál. Þegar alveg
sérstaklega stendur á getur dómsmálaráðuneytið heimilað að mál verði höfðað að
liðnum ofangreindum frestum, sbr. 3. mgr. sömu lagagreinar, sbr. 4. gr. laga nr.
23/1995. Sömu reglur gilda um málshöfðunarfresti í málum til ógildingar á fað-
ernisviðurkenningu, sbr. 3. mgr. 53. gr. barnalaga, sbr. 5. gr. laga nr. 23/1995.
3. GAGNAÖFLUN í FORSJÁRMÁLUM
Samkvæmt 2. mgr. 34. gr. bamalaga ákveður dómstóll eða dómsmálaráðu-
neyti í úrlausnum sínum hjá hvom foreldri forsjá bams verði eftir því sem barni
er fyrir bestu. Sönnunarfærsla í forsjármálum hlýtur því að snúast um það að
sýna fram á hvaða lausn er best fyrir barnið. Við úrlausn á því koma mörg atriði
til skoðunar svo sem hæfni foreldra, tengsl foreldra og bams svo og önnur atriði
276