Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Page 48

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Page 48
Þegar svo er ástatt verður dómur sjálfur að framkvæma „mat“ á því hvað falli utan reglunnar og hvað innan. Ef hið matskennda hugtak, vísireglan eða venjan, sem notast er við er á sérfræðisviði er augljóst að dómur er betur í stakk búinn til að takast á við efni reglunnar ef hann er skipaður þeirri sérfræðiþekkingu sem á reynir heldur en ef hann væri það ekki. Dæmi: Við uppskurð á spítala er því haldið fram að lækni hafi orðið á mistök í læknisverkum sínum vegna gá- leysis. Réttarreglan um gáleysi skírskotar til hátternis „venjulegs“ skurðlæknis í sambærilegri stöðu. Erfitt er fyrir dómstól að meta þetta atriði nema hann hafi sérfræðiþekkingu á að skipa. Hér verður samkvæmt framansögðu sett fram sú skoðun að við alla beitingu réttarreglna, sem fela í sér sérfræðilegt mat eða þar sem sönnunargildi sér- fræðiskýrslna er ákveðið, séu líkur fyrir því að auðveldara sé að ná fram „rétt- um“ dómi þegar dómurinn sjálfur hefur á að skipa sérfræðiþekkingu heldur en ef svo væri ekki. Þetta er skiljanlegt í ljósi þess að öll upplýsingamiðlun er bein innan dómsins en óbein ef sérfræðingar gefa skýrslu utan dóms. Þessi niður- staða hlýtur að vega þungt því að meginmarkmiðið í sérhverju deilumáli er að rétt úrlausn fáist. 9. HVENÆR BER AÐ TILNEFNA SÉRFRÓÐA MEÐDÓMSMENN Hafa verður í huga að dómari þarf að jafnaði að taka ákvörðun um það hvort hann ætli að tilnefna sérfróða meðdómsmenn áður en aðalflutningur hefst í máli. A því stigi er oft ekki víst að hvaða marki geti reynt á sérfræðiþekkingu þeirra. Jafnframt verður að hafa í huga nauðsyn samræmdrar beitingar þess úrræðis að tilnefna sérfróða meðdómsmenn þar eð mismunandi beiting getur leitt til mismunandi dómsúrlausna í sambærilegum málum. Eðlilegt er því að ákveðnar séu viðmiðunarreglur fyrir dómara til að styðjast við í þessu efni. Ljóst er af því sem rakið hefur verið í kafla 7 að dómari skal að jafnaði ekki tilnefna sérfróða meðdómsmenn til að semja skoðunargerð eða gera matsgerð í máli. Hins vegar er honum rétt að tilnefna sérfróða meðdómsmenn ef hann telur að kunnátta þeirra hafi þýðingu fyrir málsúrslit vegna lagareglu sem túlka þarf eða beita, td. til að ákveða sönnunargildi sérfræðiálits. Hafa ber hér í huga að oft er álitaefni í sjálfu sér hvort dómari hafi ekki nægi- lega þekkingu sjálfur til að beita lagareglu eða ákveða sönnunargildi þegar um svonefnd sérfræðisvið er að ræða. Við mat á þessu virðist skipta máli hversu traust gögn dómari telji að liggi fyrir í málinu um efni þeirrar réttarreglu sem um er deilt og einnig hvort hún skipti meginmáli við úrlausn dómsmálsins eða hvort hún sé frekar til hliðar við kjama þess. Héraðsdómari hefur víðtækt mat um það hvort þörf sé á sérkunnáttu í dómi og er æðri réttur sjaldnast í aðstöðu til að hnekkja því mati. Þegar héraðsdómari tekur ákvörðun sína verður hann einkum að meta hvort sérkunnáttu sé þörf til að túlka eða beita lögum, þám. til að ákveða hvað teljist sannað í málinu. Þar sem ganga má út frá því að dómur stefni jafnan að því að dæma „réttan“ dóm í máli virðist ekki óeðlilegt að sérfróðir meðdómsmenn séu fremur tilnefndir 290

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.