Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Síða 50

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Síða 50
Sigurður Líndal er prófessor í lögum við Háskóla íslands HLUTUR DÓMSTÓLA í ÞRÓUN RÉTTARINS Erindiflutt á hátíðarfundi vegna 75 ára afmœlis Hæstaréttar íslands ló.febrúar 1995. Forseti Islands, forseti Hæstaréttar og aðrir dómendur, ágæta samkoma. í stjórnarskrá íslands frá 17. júní 1944 er gert ráð fyrir að ríkisvaldinu sé skipt í þrennt: löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Fá ákvæði eru þar um dómsvaldið. Þó segir að skipun þess skuli ákveðin með lögum, því skuli tryggt tiltekið sjálfstæði gagnvart framkvæmdavaldinu og dómendur skuli í embættis- verkum sínum einungis fara eftir lögunum. Sú hugmynd að skipta ríkisvaldi milli ólíkra handhafa á sér fornar rætur, en þrískipting sú sem nú er víðast viðhöfð er jafnan eignuð franska stjómspek- ingnum Montesquieu og einnig er enski stjórnspekingurinn John Locke nefndur til þeirrar sögu. Montesquieu ætlaði dómstólunum ekki rúmar valdheimildir né heldur mikinn hlut í réttarþróuninni. Þar var hann háður ríkjandi hugmyndum samtíðar sinnar um sett lög sem nánast einu viðurkenndu réttarheimildina. En þannig hafði ekki alltaf verið litið á og að baki lá löng þróun.1 FRÁ SÁTTMÁLA TIL VALDBOÐS Framan af miðöldum mótaðist regluverk þjóðfélagsins af úrlausnum lögvísra manna sem sérstaklega vom til kvaddir að leysa úr deilumálum sem iðulega voru lögð fyrir þá sem fyrirspurn um hvaða regla ætti að gilda. Úrskurður þeirra 1 Montcsquicu: De l'Esprít des lois VI,3; XI,6. Hér er stuðzt við eftirtaldar útgáfur: Montesquieu: De iEsprit des lois. Tome I-II. Éditions Garnier Fréres. Paris. The Spirit ofthe Laws by Baron de Montesquieu I-II. Translated by Thomas Nugent. With an Introduction by Franz Neumann. Hafner Press. New York. The Hafner Library of Classics [Number Nine]. 292

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.