Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Síða 59
Á VÍÐ OG DREIF
NÝR HEIÐURSFÉLAGI LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
Hér á eftir fer ávarp formanns Lögfrœðingafélags íslands Daggar Pálsdóttur
þegarfrú Auður Auðuns var gerð að heiðursfélaga.
Frú Auður Auðuns, góðir gestir.
Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin til þessa kaffisamsætis. Tilefni þess er
öllum kunnugt, en það er að minnast þess að hinn 11. júní sl. voru sextíu ár liðin
frá því að Auður Auðuns lauk kandidatsprófi í lögfræði, fyrst íslenskra kvenna.
Af þessu tilefni og fyrir önnur brautryðjendastörf Auðar hefur stjórn Lögfræð-
ingafélags íslands ákveðið að gera hana að heiðursfélaga Lögfræðingafélags
Islands.
Auður notfærði sér þau tækifæri sem konur fengu til náms, námsstyrkja og
embætta fæðingarár hennar 1911. Auður lagði fyrir sig lögfræði og lauk
embættisprófi í lögfræði árið 1935, þá 24 ára að aldri, fyrst íslenskra kvenna.
Það þótti fáheyrður viðburður, enda þá nálega tvær aldir liðnar frá því að fyrsti
Islendingurinn lauk lagaprófi. Hér er og fróðlegt að geta þess að það var þegar
á árinu 1919 sem vestur-íslensk kona lauk lagaprófi frá Manitóba-háskólanum
í Winnipeg, fyrst íslenskra kvenna vestanhafs. Meðal lögfræðinga af íslenskum
uppruna á hinum Norðurlöndunum mun kona fyrst hafa lokið lagaprófi frá
Hafnarháskóla árið 1957. Þessar upplýsingar koma fram í fjórða og síðasta
bindi Lögfræðingatals sem væntanlegt er síðar á þessu ári.
Lögfræðistörf Auðar hófust á ísafirði, fæðingarbæ hennar, með málflutningi.
Hún varð fyrsti kvendómari á landinu er hún var kvödd til sem setudómari á
Isafirði í máli einu þegar bæjarfógetinn þurfti að vrkja sæti. I Reykjavík var
Auður lögfræðingur Mæðrastyrksnefndar í tvo áratugi frá 1940-1960 og vann
þar mikilvæg brautryðjendastörf á sviði lögfræðiaðstoðar við almenning.
Mestum hluta starfsævi sinnar hefur Auður varið til stjómmálastarfa, bæði í
borgarstjórn og á Alþingi. Hún var borgarfulltrúi í Reykjavík 1946-1970, í
borgarráði 1952-1970, forseti borgarstjómar 1954-1959 og 1960-1970 og
borgarstjóri um liðlega eins árs skeið 1959-1960. A Alþingi sat Auður sem
varaþingmaður 1947 og 1949 en sem kjörinn alþingismaður Reykvrkinga 1959-
301