Tímarit lögfræðinga - 01.12.1995, Side 63
samfélagslegrar ábyrgðar lögmanna, um upplýsingaskyldu lögmanna gagnvart
almenningi, um hlutverk lögmannafélaga og skyldu til að tryggja rétt borgar-
anna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir hlutlausum og óháðum dómstólum, um-
sagnarhlutverk vegna lagasetninga og efling umræðna um framkvæmd laga. Þá
rakti formaðurinn reglur Sameinuðu þjóðanna um hlutverk lögmanna, meðal
annars um rétt sakbominga til varnar, jafnan rétt til að gegna lögfræðistörfum,
um vörslu réttinda skjólstæðinga lögmanna og eflingu réttlætis, um tjáningar-
frelsi lögmanna, réttinn til að stofna og ganga í lögmannafélög o.fl. Formað-
urinn rakti einnig starfsemi Mannréttindaskrifstofu Islands og aðildarsambanda
hennar en samþykki til aðildar félagsins að skrifstofunni var aflað á aðalfundi
þann 18. mars 1994.
Þessu næst vék formaðurinn að lögmannavaktinni og sagði að stofnun hennar
hefði vakið mikla athygli á sínum tíma. Morgunblaðið hefði meðal annars helg-
að leiðara starfseminni, þar sem sagt var að opinber réttaraðstoð væri ein af for-
sendum þess, að allir borgarar væru í raun jafnir fyrir lögunum. Formaðurinn
lagði áherslu á þá skyldu lögmanna að tjá sig um mannréttindi.
Formaðurinn taldi félagið nú standa á krossgötum vegna endurskoðunar á
lögum um málflytjendur. Helstu atriði sem skoða þyrfti væru skylduaðildin,
lögmannsréttindin sem slík, agavald yfir lögmönnum, fræðslumál, einkaréttur
lögmanna til málflutnings fyrir dómstólum, o.fl. Um skylduaðildina sagði for-
maðurinn að í Noregi væri ekki skylduaðild, þó svo að skylduaðild væri al-
menna reglan í Evrópu. Formaðurinn gerði að umtalsefni stöðu lögmanna, sem
starfa hjá fyrirtækjum og stofunum, og kvað þá njóta lítillar þjónustu af hálfu
félagsins. Einnig gerði hann lögmannsréttindin að umtalsefni og sagði að auka
þyrfti kröfur til nýrra lögmanna, með aukinni kennslu og kröfum um starfs-
reynslu á lögmannsstofu. Formaðurinn upplýsti að dómsvald félagsins hefði
nýlega verið afnumið með breytingum á málflytjendalögunum, þrátt fyrir mót-
mæli stjórnar L.M.F.f. Um einkarétt lögmanna til málflutnings fyrir dóm-
stólum sagði formaðurinn, að þar sem fleiri verkefni hefðu verið flutt frá dóm-
stólum til framkvæmdavaldsins undanfarin ár, hefði einkaréttur lögmanna til
málflutnings verið þrengdur. Hann taldi að einkarétturinn leiddi til vandaðri
málflutnings og meiri líkum á réttri dómsniðurstöðu. Minnst var á félagsform
lögmannastofa og sagt að það þyrfti að gæta þess að aðrir en lögmenn hirtu
ekki tekjur þaðan og hefðu ekki völd í slíkum félögum. Einnig var minnst á
ábyrgðartryggingar lögmanna og þörfina á því að setja reglur um takmörkun
ábyrgðar þeirra. Varað var við samstarfí við aðrar stéttir, sem ekki búa við
sömu reglur um trúnað gagnvart skjólstæðingum sínum. Nauðsynlegt væri að
setja skýrari reglur um trúnað lögmanna gagnvart skjólstæðingum þeirra til að
tryggja sjálfstæði lögmanna.
í lok ræðu sinnar kvaðst formaðurinn vera á þeirri skoðun, að Lögmannafélag
íslands gæti stuðlað að betra samfélagi með því að auka þekkingu almennings á
réttindum hans og skyldum. Formaðurinn þakkaði samstarfsfólki sínu í félaginu
fyrir samstarfið og sagði störf sín fyrir félagið hafa verið mjög þroskandi fyrir sig.
305