Ægir - 01.06.1999, Síða 53
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
spils er 16 tonn á tóma tromlu og á
hvorri tromlu rúmast 2000 faðmar af
vírmanilu.
Netatromlan er einnig frá Ósey af
gerðinni NHM 200. Hún togar 4,8
tonn á tóma tromlu. Tromlunni er
komið fyrir á skutgálga og er hún
hreyfanleg á vökvaknúnum sleða.
Akerisspilið er af gerðinni NHA-
2000 með tvær útkúplanlegar tromlur
fyrir vír. Togkraftur þess er 3,6 tonn.
Þilfarskraninn er frá Sormec af gerð-
inni T2000 M19/EL með liðarmi.
Kraninn er 19 tonnmetrar og er með
1,5 tonna vírspil.
Fiskilest og fiskimóttaka
Rúmgóð fiskilest er í skipinu. Lestin er
um 125 rúmmetrar að stærð og tekur
72 fiskikör, 660 lítra að stærð. Tveir
öflugir Kuba kæliblásarar eru fremst í
lestinni. Þeir eru búnir sjálfvirku af-
hrímingarkerfi. Fisklúgurnar eru tvær,
búnar rennum sem hægt er að snúa og
beina að fiskikörunum. Lestarlúgan er
óvenju stór eða 2,5 x 2,5 m. Lestin
klædd ryðfríu stáli og einangruð með
polyurethan.
Ofan á lestarlúgu er fiskimóttaka
(kar) með alls sex aðgerðarstöðvum.
Eftir aðgerð og blóðgun fer fiskurinn í
blæðikar en þau verða tvö, eitt í hvoru
borði. Frá blæðikörum fer aflinn niður
í lest um áðurnefndar rennur.
Helstu tæki í brú o.fl.
Helstu siglinga, fiskileitar- og fjar-
skiptatæki eru frá Brimrúnu ehf. Um
er að ræða Furuno tæki og þau helstu
eru; ratsjá af gerðinni FR-2115, ARP-26
mini arpa, RP-26 radarplotter, FCV-
782 tveggja tíðna dýptarmælir, GP-30
GPS staðsetningartæki, GP-80 GPS
staðsetningatæki ásamt leiðarita, GR-
80 GPS leiðréttingabúnaður, FM-2520
VHF talstöð og T-2000 sjávarhitamæl-
ir. í skipinu er Robertson gíro áttaviti
ásamt Furuno FAP-330 sjáifstýringu.
Óskum útgerð og áhöfn
ARNAR KE 14
farsældar og fengsællar framtíðar
Með kveðju
OSEY • HVALEYRARBRAUT 34
| 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2320 • FAX: 565 2336
SEV
AGIR 53