Ægir - 01.08.1999, Page 6
r
Oánægj uraddirnar
munu þagna
- segir Guðni Geir Jóhannesson,
forseti bæjarstjórnar
ísatjarðarbæjar
„Ég vil ekki segja að úthlutun
byggðakvótans hafi ráðið úrslitum
unt að Fiskvinnslan Fjölnir hf. var
stofnuð á Þingeyri. Sjálfsagt hefði
verið stofnað fyrirtæki um fisk-
vinnslu á Þingeyri þó svo að byggða-
kvótinn hefði ekki komið til sögunn-
ar en það er sú ákvörðun Isafjarðar-
bæjar að stýra öllum byggðakvóta
sveitarfélagsins á Þingeyri sem ýtti á
eftir að Fjölnir hf. varð til í því formi
sem raun ber vitni,“ segir Guðni
Geir Jóhannesson, forseti bæjar-
stjórnar ísafjarðarbæjar.
Guðni gefur ekki mikið fyrir þá
gagnrýni að með þeirri leið sem far-
in var í Fjölni hafi byggðakvótinn í
raun verið afhentur aðilum utan
Vestfjarða í stað þess að heimaaðilar
fengju tækifæri til að njóta hans.
„Það er nú svo skrýtið hér á Vest-
fjörðum að það hefur aldrei mátt
heyrast að aðkomumenn komi hing-
að og gerist hluthafar að fyrirtækj-
urn vegna þess að þar með fari hinir
sömu aðilar með allt í burtu. Ég
held að við þurfum að átta okkur á
að hingað á Vestfirði þarf að koma
fjármagn til að skjóta rótum undir
sjávarútveginn í fjórðungnum og
með Vísismönnum koma hingað
1000 tonn sem sannarlega eru mikils
virði. Til viðbótar er svo hlutafé fél-
agsins mikið og ef menn hafa eitt-
hvað við þetta að athuga þá þurfa
þeir að hugsa sinn gang. Ég held að
óánægjuraddirnar eigi eftir að
þagna," segir Guðni.
Frá stofnfimdi Fiskvinnslunnar Fjölnis hf. Forsvarsmenn ísafjarðarbœjar, þau Guðni
Geir jóhannesson og Ragnheiður Hákonardóttir, skrifa undir stofnsamninginn en þeim á
vinstri hönd eru Egill jónsson, formaður stjómar Byggðastofnunar og Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis hf.
Fiskvinnslan Fjölnir hf. stofnuð:
Nýr fiskvmnslukalli
í sögu Þingeyrar
N'ýtt fiskvinnslufyrirtœki,
Fiskvinnslan Fjölnir hf. var
stofnað á Þingeyri um miðjan
ágústmánuð af Burðarás hf.,
Byggðastofnun, Plastvest ehf., Vísi
hf., Friðnýju Jóhannesdóttur og
Guðmundi Ingvarssyni. Hlutafé
fyrirtœkisins er 400 milljónir og fœr
fyrirtœkið í sinn hlut byggðakvóta
ísafjarðarbœjar.
Vísir hf. í Grindavík mun mun stýra
fyrirtækinu meðan það verður að
komast á legg og mun landa um 1000
tonnum af sínum kvóta á Þingeyri. Til
viðbótar er ætlunin að Fjölnir noti
hlutafé til kaupa á heimildum allt að
600 tonnum þannig að í byrjun geti
vinnslan haft yfir að ráða um 2000
tonnum á ári.
Gert er ráð fyrir að hagnaður félags-
ins verði notaður til frekari kaupa á
veiðiheimildum þegar greiðslubyrði af
lánum leyfir. Megináherslan er lögð á
landvinnslu sem veiti 25-30 manns
atvinnu á Þingeyri.
Pétur H. Pálsson í Vísi hf. í Grindavík
fylgist með að gangi mála á stofnfundi
Fjölnis hf. Pétur var kosinn stjómarfor-
maður fyrirtœkisins.
6 MCm
Halldór Sveinbjörnsson Halldór Sveinbjömsson