Ægir - 01.08.1999, Page 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Innkoma Vísis í Búlandstind á Djúpavogi síðastliðinn vetur:
Markmiðið fyrst og fremst að
efla fiskvinnsluna á staðnum
- segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis
Pétur Hafsteinn Pálsson fyrir framan Búlandstind hf. Undanfarna mánuöi hefur verið
unnið aö 1500 fermetra viðbyggingu viö Búlandstind hf. og því ekki að sjá að œtlunin sé
að draga úr þeirri starfsemi fyrirtœkisins.
Varla er hœgt að segja að mikið
hafi farið fyrir Vísi hf. í
Grindavík í fjölmiðlaumraeðunni fyrr
en um síðustu áramót þegar fyrirtœk-
ið réðst í kaup á meirihluta Bií-
landstinds hf. á Djúpavogi og tók við
daglegri stjórn fyrirtœkisins. Fjöl-
miðlaumfjöllun í kjölfarið varð mjög
mikil en Vísismenn sögðu frá fyrsta
degi að œtlunin vœri að efla fisk-
vinnsluna á Djúpavogi, hœtta fryst-
ingu á fiski í húsunum á Breiðdalsvík
og Djúpavogi og taka þess í stað upp
saltpskvinnslu á Djúpavogi með lík-
um hœtti og fyrirtœkið starfrœkir í
Grindavík. Pétur Hafsteinn Pálsson,
stjórnarformaður Búlandstinds og
framkvœmdastjóri Vísis, segir að
Djiípivogur hafi hentað fyrirtœkinu
afskaplega vel vegna þess að bátar
Vísis hf. sœki mikið á miðin fyrir suð-
austan landið og því sé lientugt að
taka aflann þar á land og vinna
hann.
Strax eftir að Vísir tók við Bú-
landstindi var frystitogarinn Sunnu-
tindur seldur og sömuleiðis fiskimjöls-
verksmiðja á Djúpavogi. í stað frysti-
togarans voru keyptir tveir síldarbátar
og ætlunin er að saltfiskvinnsla verði
uppistaðan í vinnslunni á Djúpavogi
en auk þess síldarvinnsla á haustin. í
vor var hafist handa við 1500 fermetra
viðbyggingu við hús Búlandstinds og
mun nýja húsið skapa saltfisk- og síld-
arvinnslunni betri aðstöðu. Sömuleið-
is hefur Búlandstindur stofnað dóttur-
fyrirtæki um fiskmarkað á Djúpavogi
þannig að óhætt er að segja að hjólin
hafi snúist mjög hratt frá því Vísis-
menn tóku við stjórnartaumum í
hjarta atvinnulífsins á staðnum.
Búlandstindur sérhæfður í fram-
leiðslu á saltfiskflökum
„Það var leitað til okkar um að koma
að rekstri Búlandstinds en við höfðum
orðað það fyrir nokkrum árum að það
hentaði okkur ágætlega að setja niður
starfsemi á Djúpavogi vegna nálægðar
við mið okkar skipa. Við sáum strax
ákveðna möguleika á að færa Bú-
landstind hf. að þeirri vinnslu sem við
þekktum en það var ekki vafi í okkar
huga að samsetning eigna fyrirtækis-
ins var sá þáttur sem skapaði mesta
vandann. Kvótinn var alltof lítill mið-
að við þær vinnslur sem fyrirtækið var
að reka og þess vegna urðum við að
hætta vinnslu á Breiðdalsvík og selja
bæði frystitogarann og fiskimjölsverk-
smiðjuna til að gera fyrirtækið rekstr-
arhæft á ný. Við erum mjög ánægðir
með þá niðurstöðu sem varð með
fiskimjölsverksmiðjuna og hún á von-
andi eftir að vaxa og dafna hér á
staðnum. Fyrirtækin þurfa hvort á
öðru að halda og koma til með að
vinna saman í framtíðinni.
Hvað varðar saltfiskvinnsluna þá
höfum við eingöngu flatningu í
Grindavík en hér á Djúpavogi ætlum
við að framleiða saltfiskflök og sér-
ÆGIR 17
fóhann Ólafur Halldórsson