Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 31
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Velkomin á vef
VERÐLAGSSTOFU SKIPTAVERÐS
H*r *r *d finn* nnuitu opmb*r*r upo>»m9*r um
i bemni sdlu, yilulepir upplrsnger um Sikverd *
mðrkudjm oq m4n*d*iieg* f»r«o mn * tldune uppl»mg*r
um Oinkjn eturdeverdt og mergt fleire ftngf t)4verút»egi
1998 í kjölfar kjaradeilu út-
gerðarmanna og sjómanna þar
sem m.a. var deilt um fiskverð
í beinum samningum, þ.e. um
það verð sem gildir þegar sjó-
menn semja beint við útgerðir
um fiskverð í stað þess að afli
sé verðmyndaður á uppboðs-
mörkuðum. Á þeim tíma sem
Verðlagsstofa hefur starfað hef-
ur hún safnað ítarlegum upp-
lýsingum um fiskverðssamn-
inga, svo sem lög um stofuna
kveða á um, og látið vinna
gagnlegar upplýsingar um fisk-
Verðlagsstofa skiptaverðs:
Stórbætt
upplýsingaþj ónusta
yið sj ávarútveginn
V'erðlagsstofa skiptaverðs hefur
opnað vefsíðu á Veraldarvefnum
par sem er að finna mjög ítarlegar
upplýsingar um þróun fiskverðs, jafnt
í beinum viðskiptum sem á mörkuð-
um, þróun afurðaverðs og fleiri þœtti
sem kunna að snerta samninga um
fiskverð. Síðuna er að finna á vefslóð-
inni http://verdlagsstofa.is
Valtýr Þór Hreiðarsson, forstöðu-
maður Verðlagsstofu skiptaverðs, segir
að með vefsíðunni sé stigið stórt skref
fram á við í upplýsingaþjónustu við
sjávarútveginn, jafnframt því að Verð-
lagsstofa skiptaverðs framfylgi með
síðunni betur þeirri lagaskyldu sinni
að vinna á skipulegan hátt upplýsing-
ar um fiskverð og birta þær þannig að
nýtist útvegsmönnum, sjómönnum og
fiskkaupendum sem best.
Sem kunnugt er var Verðlagsstofu
skiptaverðs komið á fót snemma árs
verð sem gefnar hafa verið út í prent-
formi. Valtýr segir að augljóslega séu
miklir möguleikar til upplýsingagjafar
á Veraldarvefnum og því hafi verið
ráðist í gerð vefsíðunnar.
Á vefsíðu VSS eru nýjustu opinberar
upplýsingar frá Fiskifélagi íslands um
fiskverð í beinni sölu, vikulegar upp-
lýsingar um fiskverð á mörkuðum og
mánaðarlega færast inn á síðuna upp-
lýsingar frá Þjóðhagsstofnun um
þróun afurðaverðs í sjávarútvegi. Á
síðunni er einnig að finna aðrar upp-
lýsingar sem tengjast starfsemi
stofunnar, til að mynda úrskurði úr-
skurðarnefndar sjómanna og útvegs-
manna, lög um Verðlagsstofu o.s. frv.
Á vefsíðu VSS er einnig að finna opinn
umræðuvettvang þar sem notendur
síðunnar geta skipst á skoðunum og
komið að fyrirspurnum.
REVTINGUR
\MF/
Paul Watson skæður
Færeyingum
Sea Shephard samtökin, með
Paul Watson í broddi fylkingar, hafa
neytt þýsku verslunarkeðjuna Aldi
til að segja upp samningum við
Færeyinga um kaup á fiski, sem
þýðir 511,2 milljóna ISK tap fyrir
fiskvinnslu þeirra.
Aldi keðjan kaupir mest af
PureWater í Klakksvík og riftun
samninganna er því fyrirtækinu
alvarlegt áfall. Síðustu mánuði hefur
verið unnið þar á vöktum allan
sólarhringinn til að geta staðið við
samningana.
Sea Shephard hefur undanfarið
dreift áróðri utan við 300 af 1250
Aldi búðum. Loks lét Aldi keðjan
undan og leyfði Sea Shephard að
tilkynna að í búðum hennar yrði
hætt að selja færeyskar fiskafurðir.
Aróðurinn byggir Sea Shepherd á
grindhvalaveiðum Færeyinga en
sérfræðingar telja að stofninn sé
ekki ofveiddur þótt árlega veiði
Færeyingar 1000 dýr.
Sjávarútvegsmálaráðherra Fær-
eyinga, Jprgen Niclasen, segir að
áróðri Sea Shephard verði mætt
með fræðslu og aftur fræðslu og
öllum mótmælabréfum sem send eru
færeysku landsstjórninni verði svar-
að.
Niclasen telur að upplýsingar um
grindhvalaveiðar Færeyinga hafi
haft jákvæð áhrif á sölu færeyskra
fiskafurða í Bretlandi.
(Fiskaren)
AGIR 31