Ægir - 01.08.1999, Qupperneq 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
spil af gerðinni Bruselles 1002-S, 93
tonna. Umboðsaðili fyrir togvindurnar
hér á landi er Atlas. Sömuleiðis var
komið fyrir 50 tonna flottrollsvindum
frá Karmöy.
Hægt að kæla allan afla
Nokkrar breytingar voru gerðar í
tengslum við lestar skipsins. Útbúnir
vom gangar beggja vegna lestanna og
það skerðir lestarrýmið um nálega 300
tonn og getur skipið nú borið um
2000 tonna afla.
Sjókælikerfi var endurbætt og aukið
og getur Hólmaborgin nú kælt allan
afla en áður var mögulegt að kæla
hluta aflans. Samtals em fimm lestar í
skipinu en áður var aðeins hægt að
kæla í tveimur þeirra en öllum í dag.
Nýtt í brúnni
Aukið var við tækjabúnaðinn í brúnni
með Marport veiðarfærakerfi, Furuno
FCV-1500 dýptarmæli, Furuno CI-60G
straummæli og GMDSS fjarskiptabún-
aði frá Furuno. Öll Furuno tækin
koma frá Brimrún, umboðsaðila þeirra
hérlendis, en fyrir vom mörg Furuno
tæki í Hólmaborginni.
Stýrisbúnaður og ásrafall
endurnýjaður
í tengslum við vélaskiptin var útbúið
nýtt stjórnpúlt í vélarúmi en auk þess
var sett nýtt stýri á skipið og stýrisvél,
skipt um afgaskerfi, ásrafal, loftræsti-
kerfi í vélarúmi, smur- og sjókerfi, aft-
urgálga og fleira. Að loknum breyting-
um var skipið málað með Hempels
skipamálningu frá Slippfélaginu.
Hólmaborgin hélt strax til veiða að
loknum breytingunum. í heild sinni
munu breytingarnar hafa kostað ná-
lega 380 milljónir króna.
Æfkiiín
JSÖMl
©spíiíi
I 1^1
VÉLAR ®gi SKIP sMa
Fiskislóð 137A-101 Reykjavík - Sími 562 0095 - Fax 562 1095
WÁRTSILÁ KJg® Á ÍSLANDI
AGIR 43