Ægir - 01.08.1999, Síða 44
Útgerð Gandís VE skipti um skip í kjölfar tregveiði á
netunum í jyrra:
Sérhæft línuskip
keypt frá Noregi
Gunnlaugur Óskarsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og kona hans,
Kristín Gísladóttir, tóku um mitt sumar við nýju skipi sem fengið hefur
ttafnið Gandí VE 171. Fyrir áttu þau hjón bát með sama nafni og hefur hann
nú verið settur á söluskrá. Nýja skipið var keypt frá Noregi og er sérhœft
línuveiðiskip, sntíðað sem slíkt og með öllum besta búnaði til línuveiða. Með
þessum skipakauptim er útgerðin að breyta um útgerðarform, í stað þess að róa
á net og snurvoð verður nú gert tít á línu árið um kring.
Gandí VE er 10 ára gamalt línuskip
og var gert út í Noregi en smíðað í
Danmörku. Lengd skipsins er 34 metr-
ar og breiddin rösklega 8 metrar. í
skipinu er Caterpillar aðalvél, 870
hestöfl að stærð. Þá eru tvær hjálpar-
vélar sömu gerðar en tæplega 300
hestöfl hvor.
Gunnlaugur Óskarsson, útgerðarmaður, í
brítnni á Gandí VE við kotnu skipsins til
heimahafnar í Vestmannaeyjum.
Nýinnflutt
fiskiskip
Gandí VE 171.
44 AG,IK
Sigurgeir Jónasson Sigurgeir Jónasson