Ægir - 01.05.2000, Qupperneq 15
ÆGISVIÐTALIÐ
þeir lögðu grunn að þróunarsögu í fiskveiðum. Þetta
voru í raun þeir menn sem hafa skilað okkur því þjóð-
félagi og lífsgæðum sem við þekkjum í dag. Þarna
voru karlar eins og Bjarni faðir minn, Eggert og Þor-
steinn Gíslasynir, Hörður Björnsson og fleiri, menn
sem fóru í gegnum breytingar frá því að fiska með
skilningarvitunum yfir í að nota þá nútímatækni sem
við þekkjum við fiskileit og fiskveiðar í dag.“
Frystitogarinn varð banabitinn
Að loknu sumri á Súlunni fór Arni í Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík og gerðist því næst háseti og 2. stýri-
maður hjá Eggerti Gíslasyni á Gísla Arna, sem þá var
eitt öflugasta nótaskip landsmanna. A því skipi var
hann einnig á sumrin meðan á stýrimannsnáminu
stóð.
„Eftir tvö ár á Gísla Arna að námi loknu fór ég á
Sigurbjörgu ÓF frá Ólafsfirði og var þar eitt sumar.
Þar um borð voru úrvalsmenn og í landi frábær út-
gerðarmaður, Magnúsi Gamalíelson, en hann var ein-
stakur í viðmóti og tók mér alltaf líkt og ég væri eitt
af hans eigin börnum. Magnús var manngæskan upp-
máluð og ég er klár á að öllum hefur liðið vel í vinnu
hjá honum.“
Arið 1976 réðst Arni sem 2. stýrimaður á ísfisktog-
ara sem KEA keypti frá Noregi til Hríseyjar og fékk
nafnið Snæfell EA. Þessum togara fylgdi Arni um 13
ára skeið, eða allt þar til skipið var selt aftur til Nor-
egs árið 1989. Síðustu árin var Árni skipstjóri á Snæ-
felli og tók sem slíkur við nýjum frystitogara með
sama nafni árið 1989. Hríseyjarár Árna fengu heldur
snöggan endi þegar sá togarinn var seldur árið 1990,
eftir aðeins eins árs útgerð. Árni segist alltaf hafa ver-
ið efins um að frystitogarkaupin yrðu til góðs, enda
hafi verið vandséður rekstrargrunnur fyrir skipið.
Raunar hafði hann sjálfur yfir að ráða upplýsingum
um að aðrar leiðir væru betri og þeim hafði verið
komið á framfæri við útgerðina án árangurs. Þar var
um að ræða verkefni sem Árni ásamt félaga sínum í
útgerðartækninámi hjá Tækniskóla Islands árið 1985
þar sem þeir komust að þeirri niðurstöðu að heilla-
vænlegast væri fyrir Hríseyinga að gera út nýlegan
heilfrystitogara.
„Við sem að verkefninu unnum sýndum fram á
rekstrargrunninn með fjöldamörgum dæmum en allt
kom fyrir ekki. Et til vill væri ástandið öðruvísi í
Hrísey ef eftir þessu hefði verið farið en svona fóru
hlutirnir og verður ekki breytt héðan af.“
Smáfiskadrápið margfallt á árum áður
Þegar Árni hugsat til baka til Snæfellsáranna segir
hann merkilegt að hafa upplifað það að hafa byrjað
ferilinn í frjálsum veiðum en vera nú rígbundinn í
kvótakerfi, skýrslu- og pappírsflóð. Og hann vekur
athygli á að umræða um slæma umgengni um auð-
lindina sé í raun spaugileg þegar haft sé í huga hvern-
ig smáfiski hafi verið hent í sjóinn á árum áður.
„Á ísárunum hér fyrir Norðurlandi var ástandið
stundum þannig að megnið af áhöfninni var út við
lensport að sparka smáfiski í sjóinn á meðan einn og
einn var hirtur. Þetta þótti ekki tiltökumál þá en sést
aldrei í dag þannig að umræða um slæma umgengni
við auðlindina í dag er hreint grín. Svipaða sögu er að
segja um stærð hola - áður gilti að taka nógu mikið
um borð en núna miða menn holin einfaldlega við
vinnslugetuna því sjómenn vita að fiskurinn nýtist
ekki til verðmæta nema komast á sem stystum tíma í
gegnum vinnslu og í lest.“
Fiskifræðin komin skammt á veg
sem fræðigrein
Akureyrin á karfa-
veiðum í grænlensku
lögsögunni og hér er
ekki neitt smáræðis
hoL á ferðinni.
Magnið er aó líkindum
nálægt 100 tonnum.
Árni hefur hrærst í umræðunni um fiskveiðistjórnun-
ina um margra ára skeið og er ekki skoðanalaus í því
Sendum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
okkar bestu kveðjur
á sjómannadegi
= HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garðabæ
Sími: 569 2100
Fax: 569 2101
www.hedinn.is
E-mail: hedinn@hedinn.is