Ægir - 01.05.2000, Blaðsíða 41
B JÖRGUNARBÚNAÐUR
Kristján Magnússon framleiðir Neyðarnótina Hjálp:
„Nauðsynlegt að bjarga mönnum
fljótt úr sjónum"
Björgunarbúnaði um borð í
skipum fleygir stöðugt fram.
Meðal þess búnaðar sem býðst
hér á landi er Neyðarnótin
Hjálp, sem framleidd er af
Kristjáni Magnússyni í Reykja-
vík. Hugmyndina að björgunar-
búnaðinum á hann sjálfur og
fékk hana eftir að hafa orðið
vitni að björgun manna úr sjó
um borð í togara út af Reykja-
nesi.
„Það sem hér um ræðir er u-laga nót sem
maðurinn í sjónum fer inn í og er síðan
hífður um borð. Nótin er felld á flottein
sem fleytir 100 kílóa manni en í þetta er
fest kastlína. Línan er 30 metra löng og sé
sá sem er í sjónum fær um að draga til sín
nótina gerir hann það, fer inn í nótina og
síðan sjá þeir sem um borð eru um að
draga manninn inn. Með neyðarnótinni
þarf viðkomandi ekki að halda sér í netið
til að komast upp í skipið heldur getur
hann legið í nótinni án þess að nokkur
hætta sé á að hann detti úr. Þess vegna
gætu menn lesið Moggann á leiðinni
upp,“ segir Kristján og hlær.
Neyðarnótin Hjálp hefur verið í þróun
um nokkurra ára skeið en Kristján segist
hafa sett sér það mark að þróa búnaðinn í
samræmi við fjárhagsgetu, í stað þess að
hleypa verkefninu í skuldir. Hann segir
Tryggingamiðstöðina hafa veitt styrk til
verkefnisins og sömuleiðis hafi Hampiðj-
an verið hjálpleg. Búnaðurinn hefur hlot-
ið samþykkti Siglingamálastofnunar rxk-
isins og er margprófaður í Slysavarna-
skóla sjómanna.
„Eg veit til þess að sex menn hafi verið
hífðir um borð í einu en algengast er að
einn björgunarmaður fari í sjóinn á eftir
þeim sem fallið hefúr útbyrðis og nótin
tekur þá báða auðveldlega. Það er einn af
kostum hennar því þegar menn fara í sjó-
inn er mikilvægast af öllu að bregðast
hratt við og stytta tíma þeirra í sjónum
eins og frekast er kostur.
Nótin er framleidd fyrir allar stærðir af
bátum en ég hef sérstaklega horft til þess
að búnaðurinn nýttist vel á hábyggðu
skipunum. Sömuleiðis er neyðarnótin
hentug til nota í höfnum," segir Kristján.
Neyðarnótin Hjálp er nú seld á röskar
50 þúsund krónur og er afgreidd í köss-
um sem í eru einnig neyðarblys og rými
fyrir flotgalla.
Menn hífðir
um borð í
neyðarnótinni
Hjálp.
41 ■