Ægir - 01.05.2000, Qupperneq 58
FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN
Chlamys islandica
Hörpudiskur
Skeljar hörpudisksins eru hringlanga eða eins og blævængur að
lögun. Skeljarnar eru nánast jafnstórar og eru allflatar í fyrstu en
verða kúptari með aldrinum. Hörpudiskurinn er gráhvítur, ryð-
rauður eða bleikur á litinn og er neðri skelin ljósari en sú efri.
Fíngerðar rákir ganga út frá nefinu eins og geisli. Á skelinni
skiptast á dökkir og ljósir baugar sem stafa af breytilegum vaxt-
arhraða sem háður er árstíðum og á þeim er hægt að ákvarða ald-
ur skeljanna. Fullvaxinn hörpudiskur er 8-11 cm á hæð, en
stærstu skeljar sem hafa veiðst hér við land eru um 16 cm á hæð.
Tveir vöðvar halda skelinni saman, annan þeirra notar dýrið til
að synda þegar það þarf að forða sér en hinn til að halda skelinni
lokaðri. Sá vöðvi er hirtur til vinnslu og er hann 7-15% af heild-
arþyngd dýrsins. Utan um vöðvann eru innyfli.
Hörpudiskur finnst í Norður-Atlantshafi, norðan frá Svalbarða
og suður með ströndum Noregs. Við Island, Jan Mayen og
Grænland er hann algengur og á austurströnd Norður Ameríku,
við Alaska og Síberíuströndina suður til Norður-Japans og
Kóreu. Við ísland er hörpudiskur algengur allt í kringum land-
ið nema við suðurströndina. Hann heldur sig helst við harðan
botn og hefur fundis á 2 til 300 metra dýpi. Þar sem mest finnst
af hörpudiski geta verið
allt að 130 fullþroska
skeljar á hvern fermetra.
Æxlun verður í júlí og þá losa dýrin kynfrumurnar í sjóinn þar
sem frjóvgunin fer fram. Eftir frjóvgun þroskast eggið í lirfu sem
er sviflæg og rekur undan straumum í ca 8 vikur og þá verður
lirfan botnlæg og byrjar að mynda um sig skel. 10 ára skeljar eur
6,5 til 8,5 cm á hæð en talið er að elstu skeljar hér við land séu
yfir 20 ára. Fæðu sína síar hörpudiskurinn úr sjónum. Hann
kemur sjónum á hreyfingu með bifhárunum og tálknin sía fæðu-
agnir úr honum. Það eru mest svifþörungar og aðrar lífrænar
agnir.
Veiðar á hörpudiski hér við land hófust árið 1969 í Isafjarðar-
djúpi. Upp frá því fundust sífellt fleiri veiðisvæði, sérstaklega á
Vestfjörðum og á Breiðafirði. Síðustu árin hefur aflinn verið um
það bil 8 til 13 þúsund tonn á ári. Til skamms tíma fór megnið
af hörpidisksframleiðslunni til Bandaríkjanna en á undanförnum
árum hefur útflutningur á hörpidiski til Evrópu aukist og á síð-
ustu árum hefur mest verið selt til Frakklands.
KR0SSGÁTAN
Bratjá- iierkara Elditadí Fiskar Lileqa htcntiá Lnrdi Maáur Ltlf Ifrijkkur Hvíla Btskar Ctleriá 'Otta Oþokkar Serhljói Veióar- Fara Ófuii Úrgancj lllgres i Ahalcl
Fc'ski- skip í. 2-
Ofar Bor K\raka : • Bókitolu i 'Ftflda áttekii
Greiní Slutlri raa 6u 5. V 3. 3.
Rítt- tátur Káma V ►
Glada 1. ALpatt KLukka. Hi'nniii \l ► ' V ‘Mt Haikkar
Kafa r Skordúr Tíáu : ► V l : .
Garáa- jurt H. Iraghefni Fjrsfur
Mann 2><jr 'Ati 10. ► H. •