Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 16

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 16
HVALVEIÐAR - FRÉTTASKÝRING „Annað sem einnig á að vera okkur hvatning tiL þess að hefga hvalveiðar að nýju er aó til er mikilvæg þekking á veiðunum og nú þegar ellefu ár eru liðin síðan hvalir voru síðast veiddir hér við land er orðin hætta á því að sú þekking glatist. Við erum á síðasta snúningi með að taka ákvörðun í þessu máli," segir Hjátmar Ámason, alþingismaður. eftir veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar- innar um nýtingu hvalastofna. Inngöngu að nýju í Alþjóða hvalveiðiráðið segir Einar vera óþarfa, nema í henni felist við- skiptalegir hagsmunir fyrir Islendinga vegna sölu hvalaafurða til landa eins og til dæmis Japan. Varðandi neikvæð áhrif sem hvalveiðar gætu haft á íslenska hagsmuni segist Ein- ar ekki óttast slíkt. Hann segir að í Noregi sé til dæmis engin teljandi and- staða við hvalveiðar; málið sé einfaldlega ekki lengur í sama brennidepli og var. Þá beini „atvinnumótmælendur", eins og til dæmis Grænfriðungar, kröfum sínum í æ ríkari máli að öðrum viðfangsefnum á borð við iðnvæðingu og vaxandi mengun. Að vera á móti hvalveiðum sé ekki leng- ur á dagskrá með sama hætti og var, enda gangi mótmælendum og friðunarsinnum betur að afla fjár til flestra annarra mála en mótmælaaðgerða vegna hvalveiða. Hreinar fiskafurðir fram yfir gáfaða hvali „Eg met stöðuna þannig að nú styttist óðum í að Islendingar hefji hvalveiðar að nýju,“ segir Hjálmar Arnason, þingmað- ur Framsóknarflokksins, sem einnig á sæti í sjávarútvegsnefnd. Hann segir að þar komi margt til og bendir meðal ann- ars á eindregnar óskir vísindamanna í þá veru, enda sé þeim mikilvægt að hval- veiðar séu stundaðar, þó ekki sé nema þekkingarleitarinnar vegna. Einnig hafi menn gert sér æ betur grein fyrir því að „Ég tel að neikvæðu áhrifin af hvalveiðum gætu vissulega einhver orðið, en mitt mat er þó að þau verði ekki til langs tíma, sé skynsamlega að málum staðið," segir Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. i Neskaupstað. til þess að eðlilegt jafnvægi í lífríki hafs- ins haldist verði að veiða hvali, rétt eins og aðrir fiskistofnar séu nýttir. „Arðrán hvala í dag jafngildir kvóta sem gæti dugað fyrir mörg byggðarlög út um land,“ segir Hjálmar Árnason, sem telur jafnframt að hvalveiðar njóti vax- andi skilnings „hins firrta stórborgarliðs" - þar sem hugmyndir um sjálfbæra nýt- ingu og sjálfbært samfélag eigi aukinn hljómgrunn meðal þess fólks. Hvalaskoðunarferðir njóta sífellt vax- andi vinsælda hér á landi og eru að verða snar þáttur í ferðaþjónustu. Hjálmar tel- ur að hvalaskoðun og hvalveiðar geti átt samleið, sé rétt að málum staðið, til dæmis ef ákveðin svæði verði friðuð fyrir hvalveiðum. Nefnir Hjálmar í því sam- bandi þau svæði þar sem hvalaskoðunin er mest stunduð, þ.e. Faxaflóa, Breiða- fjörð og Skjálfanda. „Ef þetta er gert þá tel ég að veiðarnar eigi ekki að trufla hvalaðskoðun," segir Hjálmar. „Vilji Alþingis skýr og fyrirliggjandi" I nokkur ár hafa hrefnuveiðar verið stundaðar í Noregi og almennt þykir reynslan af þeim vera góð. „Veiðarnar hafa engu breytt, enda tekur fólk í vax- andi mæli hreinar fiskafurðir fram yfír gáfaða hvali," segir Hjálmar, sem hefur fulla trú á því að hvalveiðar hefjist innan tveggja ára eða svo. „Vilji Alþingis um að hefja hvalveiðar liggur fyrir," segir Hjálmar ennfremur og minnir á þingsályktunartillöga um að hefja hvalveiðar að nýju, en meðal þeirra sem að henni stóðu var núverandi sjávar- útvegsráðherra. „Árni M. Mathiesen verður að taka af skarið í þessu máli en ég tel að það hafi verið gild rök að hefja veiðarnar ekki á þessu ári þegar kastljós alþjóðlegra fjöl- miðla beinist mjög að Islandi vegna landafundaafmælis og annarra slíkra við- burða. Annað sem einnig á að vera okkur hvatning til þess að hefja hvalveiðar að nýju er að til er mikilvæg þekking á veið- unum og nú þegar ellefu ár eru liðin síð- an hvalir voru síðast veiddir hér við land er orðin hætta á því að sú þekking glatist. Við erum á síðasta snúningi með að taka ákvörðun í þessu máli.“ Stjórnmálamenn hljóta að taka af skaríð „Menn eiga ekki að skammast sín fyrir að nýta auðlindir hafsins og spurningin á ekki að vera sú hvort við eigum að hefja hvalveiðar heldur hvenær þær eigi að fara aftur af stað,“ segir Björgólfur Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Skiptar skoðanir hafa ver- ið meðal manna í sjávarútvegi hvort for- svaranlegt sé að hefja hvalveiðar að nýju, en margir hafa óttast að slíkt myndi spilla mörkuðum fyrir íslenskrar sjávaraf- urðir. „Við eigum að taka slaginn,“ segir Björgúlfur og er hvergi banginn. „Eg tel að neikvæðu áhrifin af hvalveið- um gætu vissulega einhver orðið, en mitt mat er þó að þau verði ekki til langs tíma, sé skynsamlega að málum staðið. Vissu- lega eru þó sjónarmiðin í þessum efnum mörg og misjöfn. Það sem ég vil þó benda á er að með hvalveiðibanni fjölgar hvölunum í hafinu sífellt og þeir taka sí- fellt meiri fæðu til sín, fisk sem við í sjáv- arútveginum erum að nýta í dag. Þetta tel ég gilt sjónarmið fyrir því að við hefj- um hvalveiðar að nýju. Það er líka trú mín að hvalveiðar verði hafnar hér við land innan eins til tveggja ára. Vissulega hafa áður komið þær aðstæður að við telj- um að hvalveiðar séu að hefjast að nýju innan skamms tíma, en málið er svo sett í salt. En þetta er að breytast og nú hljóta stjórnmálamenn að taka af skarið." Ekki i viðskiptastríði Þúsundir ferðamanna koma á ári hverju hingað til lands til þess að sjá þessar undraskepnur hafsins. Og það eru ein- mitt talsmenn ferðaþjónustunnar sem einna kröfuglegast hafa varað við því að hvalveiðar verði hafnar að nýju og hafa þeir bent á að tekjur af hvalaskoðun séu orðnar síst minni en af hvalveiðum, fyrir

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.