Ægir - 01.07.2000, Page 17
HVALVEIÐAR - FRETTASKYRING
utan hve áhættusamt það yrði vegna
ýmissa annarra hagsmuna að hefja veiðar
að nýju.
Hörður Sigurbjarnarson er fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar á Húsa-
vík, eins umsvifamesta fyrirtækis í hvala-
skoðunarferðum hér við land. Hann telur
að hvalveiðar og hvalaskoðun þurfi ekki
að stangast á, þ.e.a.s. ef forsendurnar
verði réttar.
„Þetta þarf að gerast í góðri sátt við alla
aðila og við megum ekki stunda þessar
veiðar í einhverju alþjóðlegu viðskipta-
stríði. Það er mitt mat að það hafi verið
mikil mistök af hálfu Islendinga að segja
sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu, enda
minnkuðu áhrif okkar stórlega með því.
Þátttaka okkar í NAMCO hefur ekki
skilað okkur miklu enda eru samtökin
ekki burðug."
Eins og kemur fram hér að framan telja
þeir Hjálmar Árnason og Björgólfur Jó-
hannsson það enga goðgá að ætla að hval-
veiðar verði hafnar innan tveggja ára eða
svo. Hörður Sigurbjarnarson er á allt
annarri skoðun og segir að tíu til fimmt-
án ár sé lágmarkstími í þessu efnum.
„Við höfum ekki unnið heimavinnuna
okkar í þessum efnum og er við flýttum
okkur um of værum við að skjóta okkur
herfilega í fótinn," segir Hörður, sem
leggur jafnframt áherslu á að hvalveiðar
og hvalaskoðun á sömu miðum geti
aldrei gengið upp. Hér þurfi að fara að
öllu með gát, svo dæmið gangi upp.
„Einstaka menn og þjóðir innan vébanda
ráðsins eru á móti hvalveiðum og i
klókindaskyni er reynt að gera okkur þetta jafn
dýrt og andstyggilegt og hugsast getur, meðal
annars með því að koma sífellt með meiri kröf-
ur um tæknibúnað og annað vegna veiðanna.
Sumir skeyta hvorki um skömm eða heiður og
líta á hvalina sem dekurdýr til þess að leika sér
við," segir Einar Kr. Guðfinnsson, formaður
sjávarútvegsnefndar Alþingis.
„Þetta þarf aó gerast i góðri sátt við alla aóila
og við megum ekki stunda hvalveiðar í
einhveiju alþjóðlegu viðskiptastríði. Það er
mitt mat að það hafi verið mikil mistök af
hálfu íslendinga að segja sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu, enda minnkuðu áhrif okkar
stórlega með þvi," segir Hörður
Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri hvataskoð-
unarfyrirtækisins Norðursiglingar á Húsavík.
Ferðamenn í hvataskoðun á Skjálfanda. Það er skoðun margra að hvalveiðar og hvalaskoðun geti farið saman hér við Land,
þó mikið álitamáL sé að stíkt geti gengið á sömu svæðum.