Ægir - 01.07.2000, Síða 26
ÆGISVIÐTALIÐ
Allsherjarsátt
sem allir geta unað við
næst aldrei
- segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands islenskra útvegsmanna,
um fiskveiðistjórnina
Það er kominn nýr stýrimaður í brúna hjá Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna. Friðrik Jón Arngrímsson heitir hann og er menntaður sem
stýrimaður og lögfræðingur. Eftir sem áður er þó skipstjórinn á sínum
stað. Kristján Ragnarsson er orðinn starfandi stjórnarformaður LÍÚ og
sumir hafa velt því fyrir sér hvort stýrimaðurinn fái að taka einhverja
túra á eigin spýtur.
Ægir fór á vettvang til að kynnast þessum nýja framkvæmdastjóra sam-
taka útgerðarmanna og komst að því að hann er 41 árs að aldri, fæddur
og uppalinn á Siglufirði þar sem faðir hans og afi voru skipstjórar.
„Það er mikið af sjómönnum í föðurætt minni og ég
byrjaði snemma að fara á sjó á sumrin. Eg fór í
menntaskóla í Reykjavík og að því loknu tók ég ann-
að stigið í Stýrimannaskólanum. Eftir það var ég til
sjós á togurum en fór svo í lagadeild Háskólans. Með-
fram námi þar var ég stýrimaður á frystitogurum. Eg
útskrifaðist árið 1987 og fór að vinna á lögmanns-
stofu. Þar þróuðust mál þannig að mitt aðalstarf var
að vinna fyrir úgerðir, auk þess sem ég sinnti skipa-
sölu. Við þetta vann ég til síðustu áramóta þegar ég
varð framkvæmdastjóri LIU.“
Við þetta má bæta að Friðrik er giftur Guðrúnu
Blöndal og eiga þau fjögur börn og eitt barnabarn.
Ekki í skugga Kristjáns
Friðrik segir starfið hjá LIU allt öðruvísi en á lög-
mannsstofunni. „Eg er hins vegar að vinna fyrir sama
fólkið og er að sumu leyti að fást við sömu hlutina."
— Stundum er sagt að nýir vendir sópi best. Ertu
byrjaður að taka til hér á skrifstofunni?
„Nei, nei, hér er allt í föstum skorðum og það verð-
ur engin sérstök breyting með tilkomu minni. Eg tek
við starfi framkvæmdastjóra af Kristjáni en hann
starfar áfram sem stjórnarformaður og það er mikil-
vægt fyrir fyrir mig og samtökin að geta áfram nýtt
reynslu hans og þekkingu."
- Kristján er mikil stærð í íslensku samfélagi og
þær raddir heyrðust að fyrst hann yrði hér áfram
myndir þú þurfa að lifa í skugga hans. Varstu ekkert
smeykur við það?
„Nei, við gerðum það upp áður en ég kom hingað
inn og það hefur engan skugga borið á samstarf okk-
ar. Það hefur verið komið á þeirri verkaskiptingu að
hans starfssvið er fyrst og fremst að sinna fiskveiði-
stjórnuninni. “
Ábyrg afstaða LÍÚ
Staða LIU hefur óneitanlega verið sterk í íslensku
samfélagi og sumir halda því fram að samtökin hafi
ráðið því sem þau vilja um stefnu stjórnvalda f mál-
efnum sjávarútvegsins. Hvað segir Friðrik um þetta?
Kemur sjávarútvegsráðherrann á fund útvegsmanna
og fær línuna áður en hann tekur sínar ákvarðanir?
„Eg vildi óska þess að svo væri en það er nú ekki
raunin. Hins vegar hlýtur það að teljast eðlilegt að
útvegsmenn hafi manna mest um sjávarútvegsmál að
segja. Það gefur auga leið að stjórnvöld hljóta að hafa
samráð við þá sem starfa í greininni. En það er reynt
bæði leynt og ljóst að reka fleyg á milli okkar og
stjórnvalda. Þeir sem slíkt gera telja það þjóna sínum
hagsmunum að grafa undan því góða samstarfi sem
verið hefur milli okkar og stjórnvalda.
Þetta góða samstarf helgast af því að LIU hefur haft
mjög ábyrga afstöðu til fiskveiðistjórnunar, verndun-
ar fiskistofnanna og rannsókna á þeim. Að þessu leyti
hefur LIU sérstöðu því víða erlendis greinir hags-