Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2000, Síða 27

Ægir - 01.07.2000, Síða 27
ÆGISVIÐTALIÐ munasamtök, stjórnvöld og vísindamenn á um þær leiðir sem best er að fara í fiskveiðistjórnuninni. Þessi ábyrga afstaða LIU á stóran þátt í því að gera þetta samstarf svo gott sem raunin er.“ — íslenskir útvegsmenn eru ekki einlit hjörð og eiga misjafna hagsmuni að verja. Hvernig gengur að fá menn til að ganga í takt? „Auðvitað eru skiptar skoðanir á ýmsu en það sem mestu máli skiptir er að hafa almennar leikreglur svo ekki sé verið að mismuna fólki. Vissulega er staða manna misjöfn eftir því hvers konar úterð þeir stunda og í því frelsi sem við búum við verða að sjálf- sögðu tilfærsiur milli útgerða og útgerðarflokka. Þar skiptir mestu að menn spjari sig sjálfir. Það hafa orð- ið ótrúlegar breytingar á skömmum tíma og það á við um allar tegundir útgerða." kvótakerfinu hafi verið komið á fyrir útgerðarmenn en þá gleyma menn því að það var gert af illri nauð- syn og útgerðarmenn tóku á sig miklar skerðingar. Það gildir hins vegar ekki um smábátasjómenn, þeir hafa bætt við sig með mjög ósanngjörnum hætti. Að því leyti eigum við ekki samleið." — En eru ekki margir smábátamenn fyrrverandi fé- lagar ykkar sem gripu þetta tækifæri þegar kvóta- kerfið þjarmaði að þeim? „Jú, auðvitað er eðlilegt að menn leiti slíkra leiða þegar göt eru á kerfinu. Það hefði þurft að taka á þessu frá byrjun þannig að allir sætu við sama borð. En menn eru enn að reyna að halda þessu áfram og það er afleitt hvernig málin hafa þróast. Nú eru smá- bátar meira að segja farnir að veiða grálúðu sem eng- ar forsendur eru fyrir.“ Friðrik J. Arngrimsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Sumir tala eins og arósemis- krafan sé að reka menn út í brottkast. Þannig tala bara þeir sem eru að réttlæta eitthvað sem þeir geta ekki réttlætt, menn sem hafa orðió undir i báráttunni og kenna kerfinu um." LÍÚ er málsvari allra útgerðarmanna — En er LÍÚ ekki málsvari stórútgerðanna? „Jú, við erum það en einnig smærri útgerða. Það er grundvöllurinn að starfi samtakanna að við erum málsvari allra.“ — En einn flokkur útgerðamanna stendur utan- garðs, smábátaútgerðirnar. Af hverju er það? Eigið þið ekki í stórum dráttum sömu hagsmuni og þeir? „Jú, að mörgu leyti. En það sem gerst hefur er að það hefur verið fært aflamark til smábátanna á sama txma og aðrir útgerðarmenn hafa sýnt ábyrga afstöðu og tekið á sig verulega skerðingu. Það er oft sagt að „Ég veit ekki hvort ég á eftir að fara í föt Kristjáns og er ekk- ert að sperrast við það en ég teldi mér það þó til hróss ef mér tækist það." Vistvæn veiðarfæri — Því er oft haldið fram að það sé eðlilegt að hygla smábátaútgerðinni því hún byggist á veiðiaðferðum sem eru miklu vistvænni en togveiðar stórra skipa.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.