Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 36

Ægir - 01.07.2000, Qupperneq 36
ÞJÓNUSTA Framleiðsla umbúða fyrir sjávarútveginn snar þáttur i starfsemi Ako-Plastos hf.: Starfsmenn með hárnet við plastframleiðslu! - „gert í þeim tilgangi að gangast undir hreinlætiskröfur sem gerðar eru til viðskiptavinanna í matvælaiðnaðinum," segir Hallgrímur Gröndal Ako-Plastos hf. opnaði nú á vordögum nýtt framleiðslu- hús á Akureyri. Með því gjörbreyttist öll aðstaða fyrir- Ptastfilmu á borð við þessa gjörþekkja sjómenn um borð i frystitogurunum. Uppbygging þjónustu og framleiðslu Sem kunnugt er varð Ako-Plastos hf. til við sameiningu AkoPlasts hf. á Akureyri og Plastos Umbúða hf. í Garðabæ. Hjá því starfa í heild um 60 manns, bæði á Akureyri og í Reykjavík. I Reykjavík hef- ur fyrirtækið opnað nýja þjónustumið- stöð að Klettagörðum 15 og þaðan er öllu sölu- og markaðsstarfi fyrirtækisins stýrt. Gerður hefur verið þjónustusamningur við Eimskip um að vöruhótel Eimskips Starfsmenn i prentsal ráða ráðum sínum en í baksýn má sjá prentvélar Ako-Ptastos. tækisins til framleiðslu á plasti og plastumbúðum. Hús- ið er 2800 fermetrar að stærð og starfa þar um 40 manns. Gert er ráð fyrir að plastframleiðsla fyrirtækisins nemi um 2000 tonnum á þessu ári og fer um helmingur fram- leiðslunnar til matvælaiðnaðarins, ekki hvað síst sjávar- útvegsfyrirtækjanna. nútímalegan hátt veginn. og samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru f dag. Sjávarútvegurinn er fyrirferða- mikill á matvælasviðinu og í þeirri grein er lykilorðið að bjóða vandaða vöru, skjóta þjónustu og fylgja þróun í grein- inni vel eftir hvað umbúðir snertir. A þessum hugtökum byggjum við okkar daglega starf,“ segir Hallgrímur Gröndal, hjá markaðsdeild Ako-Plastos hf. Eins og allir þekkja hafa hreinlætiskröfur sífellt verið að aukast í matvælaiðnaði og í samræmi við þær tók Ako-Plastos hf. upp í nýja framleiðsluhúsinu þá ný- breytni að starfsmenn vinna nú allir undir auknum hreinlætiskröfum, í hlífð- arfötum og með hárnet, líkt og gerð er krafa um í matvælafyrirtækjunum. Þetta segir Hallgrímur Gröndal, starfsmaður í markaðsmálum Ako-Plastos hf., að sýni þá áherslu sem fyrirtækið leggi á að fýlgja eftir þörfum sinna viðskiptamanna. „Við lítum svo á að umbúðaframleiðsla sé einn þáttur í að tryggja fyrsta flokks framleiðsluvöru matvæla í hendur neyt- andans og það er eðlilegt að við fylgjum eftir þeim kröfum sem viðskiptavinir okkar búa við. Við sýnum með þessu í verki að okkar eigin framleiðslukröfur koma innan frá og eru í takt við þarfir viðskiptamanna okkar,“ segir Hallgrím- ur. við Sundahöfn annist dreifingu á vörum Ako-Plastos hf. um höfuðborgarsvæðið og nágrenni og annast Eimskip einnig alla flutninga á framleiðsluvörum um allt land. Hallgrímur Gröndal segir að með tengingu við hið öfluga flutningakerfi Eimskips sé tryggður mikill afgreiðslu- hraði á vörum til viðskiptavinanna og það telur hann ekki hvað síst mikilvægt fyrir sjávarútveginn. Fjöldi vöruflokka fyrir sjávarútveg Af þeim vörum sem Ako-Plastos hf. framleiðir fyrir sjávarútveginn nefnir Hallgrímur arkir, fiskumslög, rækju-, loðnu-, karfa- og flakapoka, plastfilmur ýmiskonar, vacumpoka, strekkifilmur, brettahettur og margt fleira. Hann segir að fyrirtækið þjónusti mörg af þekktari sjávarútvegsfyrirtækjum landsins hvað plastumbúðir varðar og hafi auk þess ver- ið að reyna fyrir sér með ágætum árangri í Færeyjum á und- anförnum mánuð- um. Ljóst sé að fyrirtækið horfi sem fyrr á sjávar- útveginn sem einn af mikilvægustu I viðskipavinunum. „Við leggjum mikið upp úr að þjónusta allan Dæmi um áprentaóan matvælaiðnað á poka fyrir sjávarút- '4

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.