Ægir - 01.07.2000, Page 38
FERÐARAUNIR
Ævintýraleg markaðsferð
til Brasilíu
Þegar ég hóf störf fyrir Útflutningsráð íslands
hafði ég í nokkur ár verið sjómaður á togurun-
um Arnari HU og Örvari HU frá Skagaströnd.
Eitt af fyrstu verkefnum mínum á þess vegum
var gerð skýrslu um markað fyrir saltfisk í Bras-
ilíu. Hluti af verkefninu var 10 daga ferð til
borgarinnar Rio de Janeiro í Brasilíu til að
kynnast markaðnum af eigin raun.
Ég hugsaði mér gott til glóðar-
innar varðandi ferðina þar sem
flug var þannig að ég sá fram á að
fá heilan dag til að flatmaga í sól-
inni áður en ströng fundahöld og
ferðir x saltfiskgeymslur hæfust.
Auk þess hafði konsúll Islands í
Brasilíu séð um að panta hótelher-
bergi sem var ekki af verri endan-
um, staðsett á besta stað í borg-
inni með Ibonema stöndina á aðra
hönd og Cobacabana ströndina á
hina.
sem ekki tóku þátt í hátíðinni og
fóru í helgarfrí til New York voru
því allir að fara heim aftur. Arlega
nota viðkomandi flugfélög tæki-
færið og yfirbóka allar flugvélar á
leið til Brasilíu.
Flugvélin var sem sagt full og
það jafnvel þó ég væri mættur
fjórum tímum fyrir brottför. Það
stoðaði lítt að rausa við afgreiðslu-
fólk flugfélagsins sem benti á að
aðrir farþegar í sömu sporum
tækju þessu með jafnaðargeði,
enda vissu þeir að þetta væri fast-
ur liður. Alltaf væri yfirbókað á
þessum árstíma og engin ástæða
til að æsa sig yfir því. Þetta kæmi
til með að reddast!
Það reddaðist líka nokkrum
klukkutímum seinna og fram-
undan tólf klukkutíma næturflug
til Rio. Góður tími til að sofa og
hvílast.
Tólf tíma ræða um flug-
hræðslu!
Við hliðina á mér settist kona sem
sagðist vera flughrædd og spurði
hvort hún mætti halda í mig þar
sem það róaði hana! Eftir það hélt
hún dauðahaldi og talaði látlaust
um flughræðslu alla tólf tímana.
Ég var því bæði svefnlaus og mar-
inn á handlegg eftir flugið.
Verra var þó að vera í annarri
borg en ég átti að vera, nefnilega
Sao Paulo. Flugstjóri vélarinnar
Tom M. Ringseth, ræðismaður Islands i Brasilíu.
OQ
Ingólfur (t.h.) með markaðsstjóra „Sendas" verslunarkeðjunnar, sem er þriðja
stærsta stórmarkaðakeðja Brasilíu.