Ægir - 01.07.2000, Síða 46
VEIÐITÆKNI
Humarveíðar í gildru
Á ráðstefnu í Glasgow 29. mars s.l. flutti Tony
Bradfield hjá Meridian Technologies í S-Afríku
erindi um veiðar á humri í gildrur. Um árabil
hefur af og til verið umræða hér á landi um
humarveiðar í gildrur. Fyrir þá sem eru áhuga-
menn um humarveiðar og aðra sem hafa til
umráða humarkvóta er ekki fjarri lagi að þessi
greinarstúfur geti komið að gagni.
Við suðausturströnd S-Afríku eru
stundaðar veiðar á svipukrabba
(Rock Lobster) og hafa verið
stundaðar í áratugi. Fyrrum var
veitt í fjöldann allan af gildrum
sem voru lagðar hver um sig, hver
með sína bauju og tilheyrandi
færi og stjóra. Að leggja hverja
gildru og ná henni upp var erfið
vinna fyrir áhöfn veiðiskipsins.
ICostnaður við veiðarnar var mik-
ill enda þurfti að sigla að hverri
gildru og ávinningur lítill því
fjöldi gildra, sem hægt var að
vitja um á degi hverjum, var tak-
markaður.
Til að ná fram meiri hag-
kvæmni í veiðunum, þróaðist
gildruveiðin í það að verða klasar
af gildrum sem eru festar við línu.
(sjá mynd 1) Þessi veiðiaðferð hef-
ur verið margendurbætt á s.l. 20
árum og nú geta stærstu skipin
hæglega unnið með nokkur þús-
und gildrur á hverjum degi.
Margföld afköst veiðanna hafa
náðst með:
-þyngri og stærri veiðarfærum
með allt að 150 gildrum á
hverri línu
-útgerð stærri skipa við
veiðarnar
-mikilli tækni til að
meðhöndla gildrurnar
Gildrulínan
Línan sem notuð er og gildrurnar
eru festar á er endingargóð
polypropylen lína, 22 mm í þver-
mál. Dæmigerð lína er 900 faðma
löng með 150 gildrum og með 6
faðma millibili. Bil á milli gildra
er haft allt að 16 faðmar á slæm-
um miðum eða nýjum veiðisvæð-
um sem er verið að skoða. Línan
með gildrunum er fest við sjávar-
botninn með stjórum, einum á
hvorum enda. Baujur eru á end-
um, þannig að alltaf er hægt að ná
gildrunum upp, jafnvel þótt línan
slitni í drætti. Baujulínan er höfð
með sama þvermáli og gildrulín-
an til að auðvelda drátt.
Stærstu skipin geta unnið með
15 til 20 gildrulínur á 12 tíma
vinnudegi. Minni skip, allt að 25
m að lengd, nota 20 mm línu og
hafa um 100 gildrur á hverri línu.
Gildrumar
Humargildrurnar sem veiðiflot-
inn notar mest eru verksmiðju-
framleiddar gildrur úr plasti.
Þessar gildrur hafa komið í stað
eldri gildra sem voru smíðaðar úr
stáli og stálramminn klæddur
neti. Plastgildrurnar eru ýmist sex
eða átthyrndar og auðvelt er að
46
Mynd 1
Vitjað um gildrur sem
eru festar á línu.