Ægir - 01.07.2000, Side 49
SKIPASTÓLLINNI
BREYTT FISKIKIP
Una í Garði GK
heim úr styttingu
Una í Garði, eitt af sjö
skipum útgerðarfyrirtæki-
sins Njáls í Garði, kom
nýlega heim úr fjölþætt-
um breytingum í Nord-
ship skipsamíðastöðinni í
Gdansk í Póllandi.
Skipið var m.a. stytt um tvo og hálfan
metra, sem hefur þá þýðingu að hægt er
nú að gera það út á veiðisvæði fyrir báta
innan við 29 metra að lengd.
Önnur viðamikil breyting á skrokk
skipsins er sú að síðum var slegið út á
aftan og komið fyrir skutrennu og nýjum
toggálga. Þá var sett perustefni á skipið,
aukinn ganghraði með skrúfuhring,
ýmsar lagfæringar gerðar á aðstöðu
áhafnar. Lestargólfi var breytt og miðast
nú lestaraðstaðan við kör. Einnig var
komið fyrir nýjum krana frá Ósey en að
breytingum loknum var skipið sand-
blásið, galvaníserað og málað með
International skipamálningu frá Hörpu.
Hönnun breytinganna var í höndum
Vignis Demussonar hjá Skipa- og
vélatækni í Keflavík en sama fyrirtæki
hefur annast hönnun breytinga á tveimur
öðrum skipum Njáls hf., þ.e. Sóleyju
Sigurjóns og Sigurfara. Þau skip voru
bæði lengd.
Breytingarnar á Unu í Garði kostuðu
um 25 milljónir króna. BP-skip hafa
umboð hér á landi fyrir Nordship
skipasmíðastöðin í Póllandi.
Óhætt er að segja að Una í Garði sé
skip með reynslu. Það var smíðað árið
1972 á Akureyri og í Hafnarfirði og hét
Geiri Péturs áður en það var selt til
útgerðarfélagsins Njáls í Garði.
Mynd: Snorrí Snorrason
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með skipið.
Skipió er allt málað með INTERNATIONAL skipamálningu
frá HÖRPU HF.
Xlnternational
Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400, Fax 567 4410
Umboósaðilar INTERNATIONAL PAINTS á íslandi