Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1919, Page 14

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1919, Page 14
12 Sáttmálasjóðnum ráðstafað. Á fundi 4. jan. 1919 var lagt fram brjef fjármálaráðherra, dagsett 31. des. 1918, þar sem hann fer fram á, að landssjóði verði lánuð upphæð sú — ein miljón króna — sem Háskóli íslands á að fá greidda lir ríkissjóði Dana samkvæmt 14. gr. sambandslaganna, ásamt uppkasti að skuldabrjefi. Samþykt var með öllum atkvæð- um að veita lánið með þeim kjörum, sem í uppkastinu segir, sem sje að lánið sje óuppsegjanlegt af beggja hálfu í 20 ár, frá 1. jan. 1919, en síðan megi hvor aðili segja því upp með eins árs fyrirvara hvenær sem er. Vextir sjeu 5°/o, talið frá 1. jan. 1919 og greiðist tvisvar á ári, 2. jan. og 1. júlí með 25000 kr. í hvort skifti, í fyrsta sinni 1. júli þ. á. Frestun á embættisprófi. Slúdentarnir Jón Sveinsson úr lagadeild og Freysteinn Gnnnarsson úr guðfræðisdeild höfðu með brjefi, dagsettu 6. jan., farið fram á mánaðar- frestun á embættisprófi til fyrri hluta marsmánaðar, vegna inflúensunnar. Samþykt var samkvæmt tillögu hlutaðeigandi deilda og með skírskotun til 52. gr. háskólareglugerðarinnar að veita leyfið og að prófið byrji 1. dag marsmánaðar. Af sömu ástæðum fóru læknanemendurnir Árni Vilhjálms- son og Snorri Halldórsson fram á að mega fresta seinni hluta embættisprófs þangað til í september og var það leyft að fengnum meðmælum læknadeildarinnar. Meistarapróf í íslenskum fræðum, Háskólaráðinu hafði borist erindi frá Porbergi Pórðarsyni, um að hann fái að taka meistarapróf í íslenskum fræðum við háskólann. Samþykt var i einu hljóði að synja beiðninni, þar sem laga- ákvæði háskólans útiloka að taka hana til greina, eins og heimspekisdeild bendir á í álitsskjali sínu 30. jan. 1919. Próf í forspjallsvísindum. Sveinn V. Grímsson stúd. theol. sótti um leyfi til þess að mega taka próf í forspjallsvísind- um 3. mars 1919. En með því að svo er skýrt frá, að heim- spekiskennarinn sje fús til að prófa í heimspeki í maí, virð-

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.