Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1919, Side 29
27
Tók prófessor Guðmundur Magnússon við kenslunni í lif-
eðlisfræði.
Aukakennari Andrjes Fjeldsted, augnlæknir:
1. Fór yfir augnsjúkdóma í 1 stund á viku bæði misserin
með elstu nemendum. Notuð var við kensluna Curt
Adam: Taschenbuch der Augenheilkunde og farið yfir
199 bls.
2. Kendi elstu nemendum verklega í 1 stund á viku bæði
misserin greiningu og meðferð augnsjúkdóma við ókeypis
lækning háskólans.
Aukakennari Ólafur Porsteinsson, eyrna-, nef- og hálslæknir:
1. Kendi eldri nemendum háls-, nef- og eyrnasjúkdóma-
frœði í 1 stund á viku bæði misserin. Yið kensluna var
notuð bók Kayser’s: Kehlkopf-, Nasen und Ohren-
krankheiten.
2. Kendi eldri nemendum við ókeypis lækning háskólans
greining og meðferð eyrna- nef- og hálssjúkdóma í 1
stund á viku bæði misserin.
Aukakennari Vilhelm Bernhöft, tannlæknir:
Hafði verklegar æfingar í lannútdrœtti og fyllingu tanna í
1 stund á viku bæði misserin.
Heimspekisdeildin.
Haustmisserið 1918—19.
Prófessor, dr. phil. Ágúst H. Bjarnason:
1. Fór í forspjallsvísindum yfir sálarfræði og rökfræði eftir
kennarann, 4 stundir á viku, 5 stundir eftir spönsku
veikina til misserisloka.
2. Rakti í fyrirlestrum fyrir almenning þróunarsögu sálar-
lífsins. Ein stund á viku.
3. Fór yfir undirstöðuatriði siðfrœðinnar með nokkrum
nemendum. Ein stund á viku.