Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1919, Side 56
54
ráðið þá jafnframt, hve nær áætlun verði gerð (sbr. 6. gr.) og hve nær
umsóknir skulu vera komnar (sbr. 7. gr.).
Staðfest af konungi 29. júní 1919.
II.
JSrjef
prófessors Guðmundar Magnússonar
um minningargjöf hans.
Reykjavík, 30. júní 1919.
1. júlí þ. á. eru 25 ár liðin, siðan jeg var skipaður kennari i læknis-
fræði, og heíi jeg siðan haft það verk á hendi, fyrst við læknaskólann,
síðan við háskólann. í minningu þessa aldarfjórðungs vil jeg hjer með
Ieyfa mjer að bjóða háskólaráðinu að gefa Háskóla íslands nú þegar
2500 — tvö þúsund og fimm hundruð — krónur, ef það vill þiggja,
með þessum skilyrðum:
1. Upphæð þessari skal varið til að stofna sjóð, sem kendur sje við
mitt nafn.
2. Vöxtum hans skal árlega verja til að styrkja læknisfræðisnemendur
háskólans lil bókakaupa, fyrst um sinn 2 á ári með 50 kr. hvorn,
en afganginn skal leggja við sjóðinn. Siðar, þegar sjóðurinn yxi
svo, að hann yrði þess umkominn, mætti annað hvort veita sömu
upphæð fleirum, eða liærri uppliæð 2, en þess æ gætt, að ekki sje
lagt við sjóðinn minni upphæð en sem svarar ’/>o af vöxtum.
Virðingarfylst,
G. Magnússon.