Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1919, Blaðsíða 16
14
Norðurlanda á fundi Norræna stúdentasambandsins á Voss
í sumar — en það málefni skiftir Háskóla íslands — mælir
háskólaráðið með þvi, að prófessor Ágúst H. Bjarnason
verði veittur styrkur af fje þvi, er í fjárl. 1918—19 14. gr.
B. I. d. getur, til að sækja áðurnefndan fund Norræna
stúdentasambandsins.
Myndasafn B. M. Ólsen. Á fundi 5. april var sam-
þykt að kaupa myndasafn það, er prófessor dr. phil. et litt.
isl. Björn M. ólsen hefir eflir sig látið, handa háskólanum
eftir mati tilkvaddra óvilhallra manna. Var prófessor Guð-
mundi Finnbogasyni falið að annast matið fyrir háskólans
hönd. Safnið var síðar selt háskólanum fyrir 750 kr.
Embætti. Dr. phil. Alexander Jóliannesson fór þess á
leit, að háskólaráðið legði til, að sjerstakt embætti yrði sett
á stofn við háskólann í germönskum fræðum handa sjer.
Beiðninni fyigdi álitsskjal Sigurðar Nordal prófessors og til-
laga heimspekisdeildar. Svolátandi tillaga var samþykt: Há-
skólaráðið getur ekki að svo stöddu mælt með stofnun slíks
embættis, sem i nefndum skjölum greinir.
Dócent Jón J. Aðils sendi háskólaráðinu erindi um að
staða hans yrði gerð að prófessorsembætti, en til vara, að
hann yrði gerður prófessor extraordinarius með sömu launa-
kjörum og aðrir prófessorar v.ið háskólann. Háskólaráðið
taldi beiðnina á fullum rökum bygða og mælti hið besta
með henni. Var rektor falið að koma málinu á framfæri.
Ut af erindi guðfræðisdeildar um að gera Magnús dócent
Jónsson að prófessor og erindi læknadeildar liáskólans um
að Stefán Jónsson dócent fái sömu launakjör og prófessorar
og að húsnæði og útbúnaður rannsóknarstofunnar verði auk-
inn og endurbættur, var samþykt að rita stjórnarráðinu á
þessa leið: Háskólaráðið kannast við það, að starf dócent-
anna Stefáns Jónssonar og Magnúsar Jónssonar sje eigi
minna nje óvandasamara en prófessora viðkomandi deilda,
og vill það þvi mæla með þvi, að beiðni þeirra verði tekin