Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Síða 6
4
kranz, frá októberbyrjun 1917, en tók við því starfi að fullu
og ðllu 1924. Dyravörður Háskólans var hann frá 1918.
Hann lét af starfi þessu i byrjun síðasta háskólaárs, enda
þá gersamlega farinn að heilsu.
Ólafur Rósenkranz var lang þekktastur fvrir starf sitt sem
leikfimiskennari við Menntaskólann. Hann var binn mesti af-
Imrðamaður að kröftum og fimleik, enda einhver snarlegasti
maður i lireyfingum öllum, jafnvel eftir að hann var orðinn
dauðveikur. Hann var mjög hreinn og beinn í framkomu sinni
og ágætur starfsmaður. Ólafur Rósenkranz andaðist 14. dag
nóvembermánaðar 1929. Vil eg biðja þá, sem hér eru við-
staddir, að minnast þessa látna merkismanns og góða drengs
með því að standa upp.
Breytingar á kennaraliði Iláskólans liafa verið þær, sem
nú skal greina:
Frá 1. janúar þessa árs var dr. Páll Eggert Ólason, pró-
fessor í Islandssögu, settur bankastjóri i Búnaðarbankanum,
og livarf þá frá starfi sínu við Háskólann. Hann vann mikið
vísindastarf í embætti sinu og var bæði góður samverkamað-
ui' og liðtækur vel um stjórn liáskólamálefna. Vil eg í nafni
Háskólans þakka lionum starf lians og óska bonuin góðs gengis.
Um prófessorsembættið í Islandssögu liafa margir sótt, og
hefir heimspekisdeild ákveðið að láta fram fara samkeppni
um það. En til bráðabirgðar befir Barði Guðmundsson, mag-
ister, verið settur til þess að gegna embættinu, og er bann einn
af umsækjöndunum. Býð eg hann velkominn að Háskólanum,
hvort sem dvöl bans þar verður lengri eða skemmri.
A síðasta alþingi voru sett lög um háskólakennara. Er
þar svo um mælt, að þegar dósentar hafi setið í 6 ár full í em-
bætti, skuli þeir verða prófessorar. Samkvæmt þessum lög-
um hefir nú dr. Alexánder Jóbannesson verið skipaður pró-
fessor 18. ágúst þ. á. Árna eg lionum heilla í tilefni af þess-
um frama.
Háskóli vor lók ekki neinn sérstakan þátt í liátíðahöld-
um þeim, sem hér fóru fram í vor út af 1000 ára afmæli Al-
þingis. En ekki fór sá atburður þó með öllu fram hjá Háskól-