Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 15
13
breytt var svo afgreitt til 3. umræðu, en lengra komst
það ekki.
Eg efast nú ekki um, að mál þctta á enn eftir mörg ára-
tog í land. En gamalt ináltæki segir, að liálfnað sé verk þá
hafið er. Kennslumálaráðherrann hefir þó að minnsta kosti
sýnt, að það er hægt að hera fram frmnvarp um hús lianda
Háskólanum, án þess að detta dauður niður. Með þessu hefir
þingið fengið að sjá, hvað hér er framundan alveg óhjákvæmi-
lega. Þingið hefir í raun og veru ekkert annað en frestunar-
vald í slíku nauðsynjamáli og þessu, og eg her bezta traust til
þess um góða afgreiðslu á því. Kennslumálaráðherranum vil
eg í nafni háskólans þakka fyrir, að hann hefir ýtt málinu úr
vör, svo og Jiorgarstjóra fyrir lians góðu tillögur, og öðrum,
sem málinú liafa sýnt velvilja og fulttingi. Þetta er nú það
mál, sem Háskólinn má ekki láta niður falla fyr en það er
komið i rétt liorf og stúdentar Háskólans eiga lieima í lnisi,
sem styður starf þeirra, í stað þess að þrýsta eins og' kínversk-
ur skór utan uni það og draga úr þroska þeirra.
Að lokum vil eg svo ávarpa ykkur, kæru ungu stúdentar,
sem liefjið nú nám ykkar hér á háskólanum. Eins og ég hef
nú vikið að uni stund, er það ekki neitt sérlega glæsilegt um-
hverfi, sem þið komið nú inn í. Háskólinn hýður ekki margt
til styrktar stúdentalífinu. En þá er að taka því, sem fyrir
hendi er, og gera úr því það bezta, sem unnt er. Að minnsta
kosti er ekki til neins að vola og leggja árar í hát. Og svo er
stúdentalífið magnað að lífskrafti, að jafnvel hér, við þessi
erfiðu starfskjör, sem Háskóli vor hýður, lifa margir hezta
og ánægjulegasta kafla æfi sinnar. Sannleikurinn er sá, að
jiað eru þá ekki til menn, sem kunna að gera gott úr öllu og
hreyta hverju herangri í hlómum skrýdda grund, ef það eru
ekki háskólastúdentar.
Það er því miður oft ekki til mikils að leggja mönnum
lífsreglur og heilræði. En það vil ég hiðja vkkur að muna, að
þessi ár, sem þið eigið kost á að dvelja liér í Háskólanum, gefa
ykkur það tækifæri, sem mjög er liæpið að þið fáið nokkru
2