Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Page 29
27
Aukakennari Sæmundur Bjarnhéðinsson prófessor
1. Fór með viðtali og yfirheyrslu vfir lyfjafræði, 3 stundir
i viku bæði misserin. Við kennsluna var stuðzt við
Poulssons Pharmakologie.
2. Hafði æfingar í Laugarnesspítala í að þekkja holdsveiki,
1 stund í viku vormisserið með elztu nemönduin.
Aukakennari Jón IJj. Sigurðsson, yfirlæknir.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir lyflæknisfræði 3—-4
stundir i viku með elztu nemöndum. Von Meliring:
Lehrbuch der inneren Medizin lögð til grundvallar við
kennsluna.
2. Sjúkravitjun 3—4 stundir í viku með elztu nemöndum
í Farsóttahúsi Reykjavikur, Landakotsspítala og heima
fram að nýári, en frá þeim tíma í Landspítala.
3. Elztu nemendur látnir skrifa sjúkdómslýsingar yfir sjúk-
linga í Farsóttahúsinu og síðar í Landspítala.
4. Fór \rfi r grundvallaratriði í sjúklinga-rannsóknaraðferð-
um með vngri nemöndum 1 stund í viku. Aðferðir sýnd-
ar verklega, er þvi varð við komið. Seifert &. Miiller:
Taschenbuch der Krankuntersuchungsmethoden notuð.
5. Leiðbeindi frá nýári elztu nemöndum við stofugang í
Landspítala 1—2 stundir á dag.
Aukakennari Kjartan Ólafsson augnlæknir.
1. Fór yfir augnsjúkdómafræði 1 stund í viku bæði misser-
in með eldri nemöndum. Curt Adam: Taschenbuch der
Augenheilkunde var notuð við kennsluna.
2. Hafði æfingar með eldri nemöndum í aðgreining og með-
ferð augnsjúkdóma 1 stund í viku bæði misserin.
Aukakennari Ólafur Þorsteinsson, eyrna-, nef og hálslæknir.
1. Fór með eldri nemöndum yfir háls-, nef- og eyrnasjúk-
dóma 1 stund i viku hæði misserin. Við kennsluna var
notað: E. Schmiegelow: Örets Sygdomme og H. Mygind:
De överste Luftvejes Sygdomme.