Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Side 60
58
Skýrsla um störf Stúdentaráðsins 1930—1931.
Skipun Stúdentaráðsins.
Stúdentaráðið var skipað þessum mönnuin: Agnar Kl. Jóns-
son, kosinn af fráfarandi Stúdentaráði. Kjörnir i deildum: Garðar
Svavarsson i guðfrœðideild, Jón Geirsson í læknadeild, Bjarni
Pálsson i lagadeild og Ólafur Briem í heimspekideild, og loks voru
þeir Gunnar Thoroddsen, Jón Þorvarðarson, Pétur Jakobsson og
Ragnar Jónsson kosnir við almennar kosningar.
Á fyrsta fundi nýja Stúdentaráðsins voru kosnir í stjórn: Agnar
Kl. Jónsson formaður, Gunuar Thoroddsen gjaldkeri og Jón Þor-
varðarson ritari. Stúdentaráðið hefir alls lialdið 17 fundi.
1. desember.
Það sem fyrst lá fyrir Stúdentaráðinu, var að undirbúa hátiða-
höldin, sem venja er að halda 1. desember ár hvert i tilefni af
fullveldi islenzka ríkisins. Þeim var hagað með svipuðum hætti og
áður. Stúdentar söfnuðust saman við Upplýsingaskrifstofuna og
gengu þaðan fylktu liði undir fána til Háskólans, en lúðraflokkur
gekk í fararbroddi og lék Sjung om studentens lyckliga dag og
fleiri stúdentalög. Af svölum Háskólans flutti Benedikt Sveinsson
alþingisforseti skörulega ræðu. Voru áheyrendur margir, þrátl
fyrir óhagstætt veður, hvassviðri og kulda. Síðar um daginn var
haldin mjög fjölbreytt skemmtun í Gamla Bio til ágóða fyrir
Stúdentagarðinn. Var hún fjölsótt og þótti góð. Um kvöldið var
svo dansleikur á Hótel Borg, svo sem venja er til. Stóð hann langt
fram á nótt, og þótti fara vel fram. —- Þá kom Stúdentablaðið út
þennan dag, og var sérlega vel til þess vandað, bæði að vöxtum
og efni, auk þess sem það var prýtt fjölda mynda frá Stúdenta-
mótinu o. s. frv. Efni blaðsins hófst á greinaflokki um háskóla-
hyggingu eftir ýmsa menn; þá konni ritgerðir um ýmisleg efni,
sönglög, ljóðmæli, ljóðaþýðingar o. s. frv.
Hátiðahöld þessi þóttu yfirleitt fara vel fram, og fengu þau lof-
leg unimæli i dagblöðunum. Veður var illt þennan dag, svo sem
áður er sagt, en þrátt fyrir það voru þó margir á ferli um það
leyti dags, sem hátiðahöldin fóru fram, og Stúdentablaðið seldist
fremur vel. Samt sem áður getur engum blandazt hugur um, að
dagur þessi er óheppilegur til hátiðisdags, þegar útiskemmtanir
eru í sambandi við hann, svona i háskammdeginu, þegar allra
veðra er von. Það virðist þvi vera full þörf að gera hér breytingar