Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Blaðsíða 65
63
laga um styrkveitingar til íslenzkra stúdenta við erlenda háskóla.
StúdentaráðiS taldi sér skylt að reyna að greiða fyrir þessu máli og
skrifaði itarlegt bréf til menntamálanefndar neðri deildar Alþingis,
og skoraði á Alþingi að samþykkja frumvarpið, en óskaði jafnframt
eftir því, að nokkrar breytingar yrðu gerðar á því. Breytingarnar
voru á þá leið að styrkveitingarnar skyldu hækka í heild sinni, og
að styrkurinn yrði veittur til lengri tíma en nú er gert. Frumvarp-
ið varð þvi miður ekki að lögum að þessu sinni. Það er ekki nokk-
ur vafi á því, að ef frumvarp þetta verður að lögum, þá er það bót
í máli frá því ástandi, sem nú tiðkast. Þarf þvi Stúdentaráðið að
fylgjast vel með gangi þessa máls.
Stúdentaráðið liefir og veitt þvi athygli, að fé það, sem úthlutað
er úr Dansk-Islandsk Forbundsfond til stúdenta á ári hverju, er tak-
markað mjög um hlutfall fram stúdentum til stórkostlegs baga, og
að styrkurinn hefir einnig verið bundinn við nám i Danmörku.
En með því að stúdentaráðið lítur svo á, að hér sé ekki fylgt þeim
tilgangi, sem sjóðnum er ætlað að fylgja viðvíkjandi styrkveiting-
um stúdenta, þá hefir það farið þess á leit við íslenzka hluta ísl.-
dönsku ráðgjafarnefndarinnar að hann beitti sér fyrir því, að stú-
dentar fengi leiðréttingu á þessum málum.
Þá hefir verið drepið á þau mál, sem merkust verða talin. Auk
þess hefir Stúdentaráðið haft afskipti af ýmsum öðruin málum, en
niörg þeirra viðkoma daglegum störfum ráðsins, svo ekki þykir
ástæða til þess að telja þau upp hér. Starfsemi Stúdentaráðsins er
nú lika komin í alveg fastar skorður að heita má, og mikið af störf-
unum hlýtur þvi að endurtaka sig.
Stúdentaráðið hefir tekið upp nokkur mál sem ekki hefir tekizt
að Ieiða til lykta, enda er þess varla að vænta að slíkt sé hægt,
þegar hvert einstakt Stúdentaráð situr ekki lengur en eitt ár í einu.
Markmið Stúdentaráðsins er, svo sem kunnugt er, að gæta hags-
muna stúdenta i hvivetna, og takist einu einstöku Stúdentaráði ekki
að ná ákveðnu marki, mun næsla Stúdentaráð taka við og halda
áfram á sömu braut.
Reykjavík, 12. nóvember 1931.
Agnar Kl. Jónsson
formaður.