Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Síða 69

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1931, Síða 69
67 afla sér atvinnu við kennslu; og auðvitað er enginn hörgull á þvi, að veita námsmönnum hér á landi annan þann beina, sem þeir nú verða að kaupa erlendis. -—■ Enn má nefna það, hve þjóð vor fer á mis við mikla menning við það, að láta allt þetta nám fara fram er- lendis, í stað þess að eiga miðstöð þessara frœða hér heima, með öllu þvi, sem henni fylgir af möguleikum til rannsókna, náms fyrir fleiri en þá, sem beinlinis keppa að fullnaðarprófi, og allskonar á- vinning fyrir íslenzkt menntalif. — Mætti margt fleira til tína, svo sem það, hve margfalt skaðlegra er fyrir menn að vera komnir til útlanda og ef til vill eyða þar miklu fé, er þeir taka eftir því, að þeim muni ekki auðnast að halda áfram á þessari braut. Eru dæmi þess afarmörg, og væri mörgum manninum það hið mesta happ, að hafa getað kynnzt námi sínu hér heima í upphafi. — Og loks verður stúdentastyrkurinn til náms erlendis þá fyrst að fullum notum, ef þeir, sem hann hljóta, hafa sýnt og sannað áður en þeir fá hann, að hann muni koma að notum. Úr öllum þessum annmörkum verður ekki bætt til fullnustu, að minnsta kosti ekki í bráðina. En þó má nú fullyrða, að úr sumum mætti draga, og úr öðrum bæta til fulls, með því að koma hér á fót undirbúningskennslu við Háskólann í sem flestum námsgreinum, sem stúdentar þurfa að sækja til útlanda. Vísindafélag íslendinga, sem er einmitt skipað visindamönnum í sem flestum greinum, einnig þeim, sem hér eru ekki kenndar, var eðlilegi aðilinn til þess að taka þetta mál til meðferðar. í því eru flestir kennarar Háskólans, svo að þar er jafnan náin samvinna milli. Félagið kaus nefnd til þess að athuga þetta mál, og komst hún að þeirri niðurstöðu, að vel væri gerlegt að koma þessari kennsla á, án verulegs kostnaðar fyrir ríkissjóð, með því að láta kennsl- una vera aukastarf allmargra sérfræðinga. Á hinn bóginn þarf ekki að efast um, að óbeinn hagnaður að þessu fyrir búskap þjóðarinn- ar verður talsverður, auk ménningargróðans, sem af því yrði. En þá er að tala um sjálft fyrirkomulag þessarar kennslu. Má þar benda á nokkrar mismunandi leiðir. Fella mætti ákvæði um hana inn í sjálf háskólalögin, en nauðsynlegt er það ekki, og naum- ast heppilegt fyrr en reynslan hefir sýnt, hvernig því verður bezt hagað. Væri því að svo komnu eðlilegast að hafa ákvæði um þetta í sérstökum lögum. Námsgreinir sumar mætti fella inn í deildir þær, sem fyrir eru. T. d. mætti bæta hagfræðinámi við lagadeild, málfræðinámi við heimspekisdeild og stofna svo tvær nýjar deildir fyrir náttúru- fraeði og verkfræði. En i fyrstu að minnsta kosti er alveg eins eðli- legt að láta þessa undirbúningsfræðslu mynda eina deild, meðan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.