Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Side 15
13
fremur en þeim sjálfum sýnist, og yfirleitt sinna náminu á
líkan hátt og sagt var, að menn hefði hagað vinnubrögðum
sínum í Bretavinnunni svokölluðu á stríðsárunum. Slíkt sé
einkamál nemandans og engan varði um það nema sjálfan
hann. Ég ætla hins vegar, að hugtakið akademiskt frelsi sé
fram komið til að tákna breytinguna frá námstilhögun í hin-
um lægri skólum, þar sem allar námsgreinar eru skyldu-
námsgreinar og námið fer fram undir fastri stjórn og til-
sjón kennaranna. Hér er fyrst og fremst um að ræða frelsið
til að velja sér námsefni, og þó að sjálfsögðu líka að skipta
um námsgrein, ef á þarf að halda, og í öðru lagi er háskóla-
námið aldrei á sama hátt háð eftirliti kennaranna sem eins
konar verkstjóra og í hinum lægri skólum. Að minnsta kosti
má örugglega telja, að akademiskt frelsi táknar ekki mikið
meira á vorum dögum, og í rauninni leiðir það af sjálfu sér.
1 háskólum nútímans er námsefnum yfirleitt þannig farið, að
þau krefjast stöðugrar, reglubundinnar vinnu og árverkni um
að fylgjast með, ef viðunanlegur árangur á að nást. Hér er eigi
aðeins um það að ræða, sem þó er eigi lítils vert, að misbrestur
á reglubundinni námsvinnu hlýtur að hafa í för með sér óhæfi-
lega langan námstíma, stóraukinn kostnað og nokkra truflun í
starfi viðkomandi háskóladeildar, heldur munu þvílík vinnu-
brögð óhjákvæmilega leiða til verra árangurs fyrir stúdentinn
um það er náminu lýkur og þar með til tjóns fyrir hann og
þjóðfélagið. — Nú megið þið, góðir stúdentar eldri og yngri,
sem á mig hlýðið, ekki taka orð mín svo, að ég sé með öllu
blindur fyrir því, að margt getur til tafar orðið á langri leið.
Háskólastúdent þarf, ef vel er, að hyggja að ýmsu fleira en
sémáminu einu, eins og ég mun síðar drepa á. Og sumir náms-
menn eiga því miður ekki við svo góð kjör að búa, að þeir
fái alltaf einbeitt sér að náminu, þótt þeir kysi það helzt. En
ég vil, að ykkur sé það frá upphafi ljóst, að háskólanámið krefst
vinnu, sem ekki verður af höndum leyst svo vel fari, nema gætt
sé fyllstu reglusemi og ástundunar. Það er önnur ósk mín til
ykkar, að þið látið ekki falskar hugmyndir um aðstöðu ykkar