Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 18
16
stórvirki í fang, að hefja sjálfa okkur og land okkar frá er-
lendum yfirráðum til sjálfsstjórnar, frá frumstæðum atvinnu-
högum og lífsháttum til nýtízkuhorfs um verkleg efni og lífs-
kjara, sem margar stærri og voldugri þjóðir mætti vel við
una. Hér hefir furðulega mikið átak gert verið og ævintýra-
legur árangur náðzt — í fyrstu lotu. Sagt hefir verið, að allt
sé að upphafi örðugast. Má vera, að þetta sé rétt, ef við höfum
í huga alla hina löngu og ströngu frelsisbaráttu íslenzku þjóðar-
innar, og að sjálfsögðu værum við ekki frjáls þjóð í dag án
hennar. En aldalöng barátta fyrir sjálfstæði og frelsi dagsins
í dag krefur áframhaldandi baráttu til varveizlu þessa frelsis
um ókomnar aldir. Það ætti engum að dyljast stundu lengur,
að vér höfum færzt í fang verkefni, er virðast mætti fremur
við hæfi 5 milljóna en 150 þúsund manns. Frá þessu sjónarmiði
blasir við okkur hið tröllaukna hlutverk Islendingsins nú og
um alla framtíð, hlutverk ykkar, xmgu stúdentar, sem að skömm-
um tíma liðnum eigið að koma fram í fylkingarbrjóst, þar
sem baráttan er hörðust um framtíðarheill landsins og þjóðar-
innar. 1 svo fámennu liði má hvergi veila vera. Hér má enginn
af sér draga, enginn liðsmaður forgörðum fara. Engin þjóð,
sem ég get bent á, á ríkari kröfur að gera til sona sinna og
dætra um manndóm í öllum greinum, hvar í stétt og stöðu
sem er. Minnizt þess, að þið eruð hingað komin til þess, ef
svo mætti verða, að geta því betur innt af höndum skyldur
ykkar við ættjörðina. Verið viðbúin. Það er mín fjórða og
síðasta ósk til ykkar hér í dag.
III. GERÐIR HÁSKÓLARÁÐS
Háskólalög og reglugerð.
Samkvæmt tillögu heimspekideildar var gerð breyting á 51.
gr. háskólareglugerðarinnar og staðfest af forseta Islands 1.
des. 1954. Breytingin er prentuð á bls. 124—125.