Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Side 92
90
tók hann mikinn og virkan þátt í rannsóknum og ferðum danska
hafrannsóknarskipsins Dönu. Hefur hann síðan ótrauður unnið
að fiskirannsóknum, sumpart á vegum Fiskifélags Islands og
sumpart á vegum Fiskideildar Atvinnudeildar háskólans, en for-
stjóri þeirrar deildar hefur hann verið frá stofnun hennar 1937.
Á því ári varð Ámi Friðriksson einnig fulltrúi Islands í Alþjóða-
hafrannsóknarráðinu, en Island hafði þá gerzt sjálfstæður aðili
þess. Árið 1954 var hann kjörinn aðalritari ráðsins. Þá hefur
hann um langt árabil verið fulltrúi Islands á ráðstefnum um
fiskirannsóknir og friðun fisks. Hann hefur einnig verið kvaddur
til að koma skipulagi á fiskirannsóknir Brasilíu og dvaldist þar
um skeið.
Ámi Friðriksson hefur samið fjölda fræðirita um fiskirann-
sóknir og birt bæði á íslenzku og ýmsum öðrum málum. Einkum
hefur hann síðari árin imnið mjög að síldarrannsóknum. Birti
hann um þetta efni ritgerð, The Herring of the North-coast of
Icdand, 1944, sem vakti mikla athygli meðal erlendra vísinda-
manna. Með síldarmerkingum í Noregi og á Islandi, sem hófust
árið 1948, þykir hafa sannazt, að skoðun hans um göngur
Norðurlandssíldarinnar séu að meginstofni réttar. Þessar rann-
sóknir hafa ekki aðeins mikið fræðilegt gildi, heldur einnig hag-
nýtt.
Deildin hefur leitað álits þeirra fræðimannanna Pálma Hann-
essonar rektors, Á. Vedel Tánings, forstöðumanns fiski- og haf-
rannsókna Dana, og Finn Devolds, forstöðumanns síldarrann-
sókna Norðmanna, og hafa allir talið Áma Friðriksson mak-
legan þessarar sæmdar.