Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Síða 129
127
daginn 2. nóv. 1954, voru allir aðalfulltrúamir mættir og fór þá fram
stjómarkjör. Komu fram tveir listar. Þessir vom kosnir í stjóm, er
skipti þegar með sér verkum:
Skúli Benediktsson, formaður,
Jónas Hallgrímsson, ritari,
Ámi Bjömsson, gjaldkeri.
Ekki sátu ráðsmenn alla fundi á starfsárinu og mættu þá vara-
menn í þeirra stað. Á nokkmm fundum var Jón Böðvarsson fundar-
stjóri í forföllum formanns. Bjöm Ólafsson útskrifaðist úr Háskólan-
um s. 1. vor og tók þá fyrsti varamaður af B-lista, Erlingur Gíslason,
stud. mag., sæti hans í ráðinu.
Utanríkisritari var kosinn Vilhjálmur Þórhallsson. Á fundi 17.
marz sagði Vilhjálmur af sér sem utanríkisritari, og var Bjami Guðna-
son, stud. mag., kjörinn í hans stað. Bjami sagði af sér 5. ágúst og
var þá Bríet Héðinsdóttir kjörin utanríkisritari.
Alls voru haldnir 43 fundir í Stúdentaráði og hafa sjaldan verið
haldnir fleiri fundir á einu starfsári, enda fer starfsemi ráðsins vax-
andi með hverju ári sem líður. Ennfremur afgreiddi ráðið ýmis merk
nýmæli, sem greint mun frá í „Vettvangnum“, aðallega á sviði utan-
ríkismála.
Almennir stúdentafundir.
Deilur miklar vom í Stúdentaráði um hátíðahöldin 1. desember. Á
Stúdentaráðsfundi 4. nóv. lagði Ingólfur Guðmundsson fram eftir-
farandi tillögu: „Ég undirritaður geri það að tillögu minni, að hátíða-
höld stúdenta 1. des. 1954 verði helguð kirkju og kristni á íslandi, eink-
um með tilliti til hinna merku tímamóta, sem fram undan em í sögu
Skálholts, þar sem háborg kristni og skóla á íslandi stóð“. — Ing-
ólfur Guðmundsson.
Tillaga þessi var studd af öllum fulltrúum „Vöku“, en meiri hluti
ráðsins lagðist gegn henni. Tillaga Ingólfs var felld í Stúdentaráði,
svo og tillaga frá fulltrúum „Vöku“ um ræðumenn 1. des. í samræmi
við tillögu Ingólfs. Lagði Ingólfur þá fram lista með nöfnum 20 stú-
denta, sem kröfðust almenns stúdentafundar um þá ákvörðun meiri
hluta Stúdentaráðs að hafna tillögu Ingólfs. Ennfremur kröfðust
fulltrúar „Vöku“ á sama fundi þess, að val meiri hluta Stúdentaráðs
á ræðumönnum 1. des. skyldi einnig tekið á dagskrá almenna stúdenta-
fundarins.
Hinn almenni stúdentafundur var síðan haldinn að kvöldi hins 19.
nóv. Framsögu höfðu Kristján Búason, stud. theol., er mælti með til-
lögum Ingólfs og fulltrúa „Vöku“ í Stúdentaráði, og Skúli Benedikts-
son, stud. theol., er hélt fast við ákvarðanir meiri hluta Stúdentaráðs,