Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 130
128
að helga 1. des. hátíðahöldin því máli, er við hann væri tengt í sögu
þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttunni.
Ingólfur lagði fram tillögu samhljóða þeirri, er hann hafði flutt
í Stúdentaráði, auk tillögu um ræðumenn 1. desember, þá Steingrím
Steinþórsson, kirkjumálaráðherra, séra Jakob Jónsson og próf. Sigur-
bjöm Einarsson, en sá síðastnefndi hafði verið ákveðinn sem ræðu-
maður af meiri hluta ráðsins, en fulltrúar „Vöku“ höfðu ekki gert til-
lögur um hann, fyrr en á þessum fundi.
Er umræður höfðu staðið nokkra hríð, kom fram svohljóðandi dag-
skrártillaga:
„Almennur fundur háskólastúdenta, haldinn 19. nóv. 1954, telur að
Stúdentaráði hafi í síðustu stúdentaráðskosningum verið falið að sjá
um hátíðahöldin 1. desember. Fundurinn fær ekki séð, að neitt það
nýtt hafi komið fram af hálfu ráðsins, er breytt geti því trausti,
sem háskólastúdentar sýndu því þá. Sér fundurinn því ekki ástæðu til
þess að ræða frekar framkomna tillögu og tekur fyrir næsta mál á
dagskrá. — Einar Sverrisson. Bjöm Hermannsson“.
Var þegar gengið til atkvæða um tillögu þessa og hún samþykkt með
141 atkv. gegn 100. Auðir seðlar vom 7 og 1 ógildur. Er dagskrár-
tillagan hafði verið samþykkt, var fundi slitið.
Hinn 8. febrúar 1955 gekkst Stúdentaráð fyrir almennum fundi
háskólastúdenta í hátíðasal Háskólans. Fundarefni var skrif brezkra
blaða vegna sjóslysa út af Vestfjörðum. Sverrir Hermannsson hafði
framsögu, og var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma:
„Almennur fundur stúdenta við Háskóla íslands, haldinn þriðjudag-
inn 8. febrúar 1955, lýsir yfir vanþóknun sinni og hryggð vegna hinna
fáheyrðu aðdróttana og einstæðu ósanninda, sem fram hafa komið í
garð íslendinga í brezkum blöðum að undanfömu í sambandi við sjó-
slysin út af Vestf jörðum nýlega.
Fundurinn beinir þeirri eindregnu áskorun til íslenzkra stjómar-
valda, að þau láti einskis ófreistað til að hrinda þessari ódrengilegu
árás og krefjist þess af brezkum stjómarvöldum, að þau beiti sér
fyrir leiðréttingu og algjörri uppreisn íslands í þessu máli“.
V
Hátíðahöld og skemmtanir.
Hátíðahöldin 1. desember s. 1. hófust með guðsþjónustu í kapellu
Háskólans kl. 11 f. h. og sá Bræðralag um undirbúning hennar að
þessu sinni. Séra Guðmundur Sveinsson prédikaði.
Klukkan 13.15 söfnuðust stúdentar saman við Háskólann til skrúð-
göngu og var haldið að Alþingishúsinu, en lúðrasveit lék fyrir göng-
unni. Klukkan 14 flutti prófessor Jón Helgason ræðu af svölum Al-
þingishússins. Þá hófst samkoma í hátíðasal Háskólans kl. 15.30.