Árbók Háskóla Íslands - 01.03.1966, Page 9
7
Skúli Hansen tannlæknir andaðist hinn 31. des. 1964. Hann
gegndi kennaraembætti í tannlækningum nokkur ár og var
einnig um skeið prófdómandi við próf í tannlækningum. Störf
sín öll rækti hann af kostgæfni og alúð, og harmar Háskólinn
andlát hans langt um aldur fram og minnist starfa hans með
virðingu og þökk.
m.
Frá síðustu háskólahátíð hefir sú breyting orðið á kennara-
liði Háskólans, að einn nýr prófessor hefir verið skipaður, dr.
Jóhann Axelsson, í hið nýstofnaða prófessorsembætti í lífeðlis-
fræði. Umsækjendur um embættið voru tveir. Ég árna hinum
nýskipaða prófessor allra heilla í starfi, og væntir Háskólinn
mikils af kennslu hans og rannsóknum. Þá var dr. Ólafur
Bjarnason dósent settur prófessor í veikindaforföllum próf.
Níelsar Dungals, og hefir setning dr. Ólafs nú verið endurnýj-
uð. Dr. Vilhjálmur Skúlason lyfjafræðingur var ráðinn fastur
kennari í lyfjafræði lyfsala, og Arinbjörn Kolbeinsson læknir
var að nýju ráðinn lektor í meinafræði. í sambandi við nýja
kennsluskipan í íslenzkum fræðum hafa verið ráðnir tveir lekt-
orar með launum sem sérfræðingar við rannsóknarstofnanir til
kennslu í málfræði og bókmenntasögu. Eru það þeir cand. mag.
Andrés Björnsson og mag. art. Baldur Jónsson. Vegna hinnar
nýju kennsluskipunar hefir próf. Hreinn Benediktsson enn
fremur verið ráðinn til að kenna almenn málvisindi. Þá hefir
Helgi Guðmundsson cand. mag. verið ráðinn til að hafa nám-
skeið í íslenzku fyrir erlenda stúdenta.
Á s.l. ári tók Jónas Thorarensen tannlæknir við kennslu í
tannlæknisfræðum, og aðrir nýir kennarar í þeirri grein eru
m. a. Guðjón Axelsson tannlæknir og Þorkell Jóhannesson
læknir. 1 efnafræði hafa nýlega tekið við kennslustörfum efna-
fræðingarnir dr. Guðmundur Guðmundsson og Gunnlaugur
Elísson, svo og Sigurður R. Guðmundsson efnaverkfræðingur.
1 meinafræði hefir Jónas Hallgrímsson læknir tekið við kennslu-
starfi.
1 viðskiptadeild eru nýir kennarar þau frú Steinunn Einars-