Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 11
11
§ 12.
Skrifari fjelagsins bókar á fjelagsfundi sjerhvað
það, sem framfer um fjelagsins málefni, og hefur hann
til þess bók löggilta, gegnumdregna og innsiglaða af
forseta. Hann ritar einnig sjerhvað það, sem aukafor-
seti í þarfir fjelagsins eptir æskir. Þar á meðal nafna-
skrá fjelagslima í tvennu lagi, aðra gjaldkeranum til
ávísunar, hina til að fram bera á fjelagsfundum. Hann
undirskrifar inn- og út-gjaldaskrá með aukaforsetanum;
líka geymir hann fjelagsins skjalasafn og sjerhvað, sem
því við kemur.
§ 13.
Gjaldkeri fjelagsins veitir móttöku öllum þess inn-
gjöldum og lýkur útgjöldunum allt eptir undirlagi auka-
forseta. Bæði inn- og út-gjöld skrásetur hann með
reglusemi án undandráttar í þar til gjörða bók, sem
gegnumdregin, innsigluð og löggilt sje þar til af for-
seta, og skal hún á 3 mánuðum hverjum sýnd forseta,
ásamt fjelagsins peningasjóð, svo þeir geti gjört sig vissa
um fjárhag fjelagsins á sjerhverri tíð. Bók þessi sje til
sýnis á fjelagsmóti 5. júlí ár hvert. Að lyktum semur
gjaldkeri við sjerhver árslok greinilegan reikning yfir
öll inn- og út-gjöld fjelagsins á þá umliðnu reiknings-
skapar-ári, og fylgi honum skjöl þau og skilríki, er
sanni sjcrhverja groin inn- og út-gjaldanna. Þennan
reikning fram lcggur gjaldkeri á fjelagsmótum 28. jan-
úaríí, hvar þá aukaforseti velur 2 fjelagslimi, til að
gagnskoða reikninginn og birta um hann meiningu sína.
Finni þessir ekkcrt athugavert við reikninginn, er hann
bráðum pre'ntaður. Bn finni þeir þar á móti nokkuð
að reikningnum, gefa þeir aukaforsota það til vitundar,
útvegar hann þá rjettlætingu gjaldkora og sker úr því,