Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 35
35
or, eins og nafnið bendir til, rautt að lit, stórt og ít-
urskapað. Stunduin eru kýr af því kyni hvítar á kviðn-
um og júgrinu.
Að þyngd er kyn þetta lifandi 900—1000 pund
að meðaltali. Kýr af þessu kyni mjólka mjög vol, og
jafnast fáar kýr á við þær í því. Meðalkýrnyt ertal-
in að vera 6500—7000 pd. (3250—3500 pottar) yfirár-
ið. Ea sjeu taldar með kvígur að fyrsta kálfi og geld-
mjólkar kýr, mun meðal-ársnyt til jafnaðar 4500—5000
pd. — Eigi allfáar kýr af þessu kyni nijólka um 8000
pd. uin árið, og hinar beztu 10,000—12,000 pd. Mjólk-
in er einnig fremur feit. Sem meðaltal af 425 kúm á
Fjóni var fcitiofni mjólkurinnar 3,42 °/0 til jafnaðar,
sem svarar því að 1 pd. smjörs fáist úr 261/* pd. mjólk-
ur. Hið danska rauða kyn cr vafalaust citthvcrt hið
fcgursta í sinni röð, og hver einstök skepna nauða-lík
annari. t>að er eins og það sje allt steypt í sama mót-
inu. Það má fara bæ frá bæ, og fjós úr fjósi, og
naumast verður annað sagt, en að alstaðar komi hið
sama í ljós, sami litur, sömu einkenni, sami skapnaður
og s. frv. En fóðrið, sem þessum skepnum er gefið,
er bæði mikið og gott. Mestur hluti þess eru rófur og
kröptugt fóður. Hver kýr fær að jafnaði 40—60 pd.
af rófum 5 —10 pd. af olíukökum, mjölhrati, höfrum og
s. frv., og hey og hálm eptir því som þær vilja.
Áður en jeg skilst við hið rauða danska kyn, vil
jcg loyfa mjer að setja hjer töflu yfir þunga á nokkr-
um kúm á Fjóni, sem eru af þcssu kyni, og mjólk úr
þcim. Taflan er frá árinu 1895, og getur um beztu
kýrnar, sem þar eru.
Hún lítur út þannig:
3*