Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 45

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 45
4'ó rakin ura lengri tima, samhliða stuttri lýsingu á helztu gripunum, er mest hefur kveðið að í ættinni, þá er hægra að sjá, hvaðan þessir afbragðs-yíirburðir stafa. Pað mun optast koma í ljós, að þeir eru arfgongir, teknir í arf frá afa eða ömmu, langafa eða langöminu, o. s. frv. En þegar skepnur þannig erfa eiginlegleika forfeðra sinna í ríkulegum mæli, er það talinn vottur þess, að þær einnig muni hafa svipuð áhrif á sín af- kvæmi. Þetta er talinn vera mjög mikils verður kost- ur á kynbótagripum. Af ættartölubókunum má enn fremur sjá, hverjum framförum eða apturförum kynstofu- inn hefur tekið, bæði að vexti, útliti og einlcennum. Sum- ar ættartölubækur Dana eru yfir 100 ára gamlar. Marg- ar þeirra byrja á árunum 1864—70, og sumar síðar. Þessar ættartölur þurfa uauðsynlega að vera einfaldar og stuttar, en þó greinilegar og ákveðnar, því að ann- ars tekur það of langan tíma að rita í þær. 3. Beikninffshald, eða töfiur yíir arð og tilkostnað kúpenings, hcfur að ýmsu leyti stutt að umbótum naut- griparæktarinnar, einkuin þó hin síðustu ár. E'yrir nokkru var það, að búnaðarfjelögin gengust fyrir því, og kyáðu á, að fjolagsinenn skyldu halda töflur yfir mjólk, smjör, o. s. frv., er kýrnar gæfu af sjer; síðan voru valdir menn, er gjörðu útdrátt af þeim, og var liann ritaður í eina bók, er fjelagið átti. Þessar skýrslur voru svo notaðar til hliðsjónar við val á kúm til und- aneldis. Hin síðustu ár hafa myndazt fjelög í Danmökru í svipuðum tilgangi, og nofnast þau „Kontrolforeninger“. Tilgangur þcirra er sá, að atliuga, hvað hver einstök kýr mjólkar, og rannsaka um leið, hversu feit mjólkin er úr hverri kú fyrir sig. Um leið er fóðrið mælt eða

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.