Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 55

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 55
55 eptir öðrum fylkjum í Svíþjóð í verklegum framfórum, en það hefur mikið breytzt á síðari árum. Járnnám- arnir draga mikið fje inn í landið á ári hverju; fyrir það eru þar orðnir margir auðmenn, sem aptur hafa stutt þarfleg fyrirtæki, svo sem járnbrautir, gufuskipa- göngur, vegagjörðir og jarðabætur. Pegar vjer höfum fengið þess konar auðmenn, þá förum vjer að fá annað og betra orð á oss, því aðekkimun íslenzkabændastjett- in standa mikið á baki útlendri bændastjett eptir ástæð- unum að dæma. Jeg hcf hvergi sjeð það Ijósara en í Norðurbotn- um, hve miklum stakbaskiptum jörðin getur tekið við góða ræktun. Par sem ekkcrt er unnið að því, að rækta hana, er hún mjög gróðurlítil að öðru eu trjám. Sjeu hinar ófrjóu mýrar eða hin skógi vöxnu holt tekin í góða rækt, fæst þar eptir fá ár góður og frjósamur jarðvegur. í Norðurbotnum er rúgur fremur lítið ræktaður, en þó í syðri hlutanum svo mikið, sem íbúar þurfa til heimilisnota. Hafrar eru ræktaðir í Lúleár —, Eánár — og Kalixsóknum, og við Haparanda, en þó geta þeir misheppnazt þar. Þegar kemur norður fyrir 66. mæli- stig, þá fara þeir að verða mjög stopulir; að vísu er þeim sáð sumstaðar norðar, en þroskast þar sjaldan. Byggræktun er mikið almenn í Norðurbotnum ognokk- uð norður á Lappmörk. Kartöflur eru mjög víða rækt- aðar, en rófur lítið. Annars er þar yfirleitt fremur lítið um garðyrkju annarstaðar en í kauptúnunum og borg- unum; samt vinnur garðyrkjufjelagið og búnaðarfjelag- ið mikið að útbreiðslu hennar. Trjárækt er ekki mikil i Norðurbotnum, og komur það af því, að skógarnir oru þar alstaðar og vaxa án

x

Búnaðarrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.