Dýraverndarinn - 01.12.1972, Side 24
en það færi eftir undirtektum félagsins undir tillögu,
sem flutt verður hér á eftir fyrir Hundavinafélag Is-
lands. Félagatala Hundavinafélags Islands er nú 488.
Þórður Þórðarson gaf skýrslu fyrir Dýraverndunarfé-
lag Hafnarfjarðar. Samþykkt var á aðalfundi félagsins
að beina þeim tilmælum til Stefáns Gunnlaugssonar
alþingismanns, að hann ynni með félaginu að tillögu
á Alþingi um skotvopnasköttun. Stjórnin sótti heim
Sædýrasafnið og athugaði starfsemi þess og reyndist
hún í góðu lagi.
Jón Kr. Gunnarsson ávarpaði fundarmenn. Hann
kvaðst vera sammála Jakobi Jónassyni, að gengið hefði
verið of langt á sínum tíma í hundamálinu, en vildi
ekki vera sammála um tillögu Jakobs og Gunnars Más
Péturssonar, sem búið var að kynna. Hann mundi því
koma með frávísunartillögu við tillögu Jakobs og
Gunnars. Þá minntist hann á útgáfu Dýraverndarans
og sagði að ekki mætti líta á sig sem framtíðarritstjóra
blaðsins.
Sigríður Pétursdóttir taldi að víst varðaði hunda-
málið undir sambandið og við verðum að taka af-
stöðu um málið.
Ásgeir Pétursson talaði næstur og sagði að málið
hefði strax verið tekið skakkt fyrir og því yrði að út-
kljá málið núna á þessum fundi.
Jakob Jónasson svaraði Jóni Kr. Gunnarssyni við-
víkjandi tillögum þeirra, sem fram verða bornar og
sagði að ekki hafi verið tekið tillit til álits einhverra
beztu manna um víða veröld um jákvætt álit þeirra
á hundamálinu.
Jóhann Sveinsson lýsti afstöðu sinni í hundamálinu
og taldi að ekki hafi hér átt að taka sérstakt tillit til
sérstakra dýrategunda, hér væri frekar um mannlegt
sambýlismál að ræða eða mannréttindamál.
Olafur Thoroddsen studdi mjög sjónarmið Jakobs
Jónassonar og taldi að hundavinir ættu ekki erindi
hingað ef hundamálið verður fellt á þessu þingi.
Sigurður Gunnarsson sagðist vera meðflutnings-
maður að tillögu Jóns Kr. og hann mundi vilja milda
hana eitthvað, annars styddi hann sína tillögu, ef ekki
tækist að breyta til samkomulags.
Valdimar Sörensen taldi að frávísunartillaga Jóns
Kr. væri alveg fráleit og næði ekki nokkurri átt að
samþykkja slíka tillögu.
Hugljúf Jónsdóttir hvatti mjög hundavini að standa
saman, hundur sinn væri sér meira virði en nokkurn
gæti grunað.
Þórður Þórðarson vildi fara bil beggja og komast
að málamiðlunartillögu, sem allir gætu sætt sig við
og las upp tillögu til athugunar.
Jakob sagðist ekki vera til viðræðu um neina breyt-
ingu á tillögu sinni. Jakob Jónasson skýrði frá al-
þjóðasamböndum þeim, sem nefnd eru í tillögum
þeirra Gunnars að gefnu tilefni.
Marteinn Skaftfells sagði að þetta mál væri hvor-
tveggja dýraverndunarmál og mannréttindamál og
minnti á að skýrsla Heilbrigðisráðs hefði verið hrakin
alveg með fullum rökum á sínum tíma. Marteinn upp-
lýsti að bréf borgarstjóra til Dýraverndunarfélags
Reykjavíkur lenti í pósthólfi S. D. I. og fékk því
Dýraverndunarfélag Reykjavíkur bréfið aldrei í sínar
hendur, heldur var látið liggja hjá sambandinu.
Dagskrártillaga frá Asgeiri H. Eiríkssyni og Ólafi
Thoroddsen var samþykkt með öllum gre;ddum at-
kvæðum gegn einu að taka til atkvæða frávísunar-
tillögu Jóns Kr. Gunnarssonar og fleiri flutnings-
manna. Frávísunartillaga Jóns var því borin upp til at-
kvæða og var tillagan felld með 34 gegn 18.
Tillaga Jakobs var samþykkt með 34 atkvæðum
gegn 5 á móti.
Ymsar aðrar tillögur komu fram um dýravernd, fé-
lagsmál. Voru þær ræddar og bornar undir atkvæði.
Sigríður Pétursdóttir talaði um hælismál og vildi
að haft yrði samráð við bændasamtökin.
Jakob Jónasson þakkaði fundarmönnum fyrir að
samþykkja hundavina-tillöguna með glæsibrag 34
gegn 5 og óskaði eftir að hún yrði sett í fjölmiðla.
Erlingur Þorsteinsson talaði um Sólskríkjusjóðinn
og skýrði frá starfsemi hans, kortaútgáfu o. fl., dreif-
ingu á korni og ýmislegt fleira. Erlingur minntist einn-
ig á dýraspítalann og taldi að það mál mætti ekki
sofna útaf.
Marteinn Skaftfells þakkaði samstarfsmönnum sín-
um fyrir vel unnin störf á árinu.
Hugljúf Jónsdóttir hvatti til þess að jólakortin yrðu
vel auglýst.
Sigríður Pétursdóttir hvatti til þess að hundar yrðu
merktir og að sambandið yrði hjálplegt með að hundar
um allt landið yrðu merktir.
Hilmar Norðfjörð minntist á Sauðárkrók og félagið
þar, og þar væru margir áhugasamir um Dýraverndar-
ann.
Næst lá fyrir stjórnarkjör og var ákveðið að at-
kvæðagreiðsla um tvo lista yrði leynileg, A-lista og B-
lista. B-listinn var fráfarandi stjórn, en A-Iistinn var
kipaður bæði eldri og nýjum mönnum.
112
DÝRAVERNDARINN