Hugur - 01.01.1989, Page 60
SIÐFRÆÐI KANTS OG AFSTÆÐISHYGGJA
HUGUR
skulum byrja á að setjast við eina slíka. Hún er í Gagnrýni
hreinnar skynsemi. Þar segir Kant:*
...við verðum þó að viðurkenna að skynsemi mannsins býr
ekki hið einasta yfir hugmyndum [Ideen] heldur og
fyrirmyndum [Ideale]. Þó þessar fyrirmyndir hafi ekki
sköpunarmátt eins og frummyndir Platóns þá hafa þær sið-
ferðilegan mátt [praktische Kraft] (sem reglugjafar [regulative
Prinzipien]) og liggja til grundvallar möguleikanum á full-
komnun vissra verka. /—/ Dyggðin, og með henni fullkomið
ómengað mannvit, eru hugmyndir [Ideen]. En hinn vitri
maður (Stóuspekinganna) er fyrirmynd [Ideal], það er maður
sem er hvergi til nema í huga okkar en samræmist fullkomlega
hugmyndinni [der Idee] um visku. /—/ Við höfum engan
annan mælikvarða [Richtmass] á breytni okkar en framkomu
þessa guðdómlega manns hið innra. Við bætum okkur með
því að bera okkur saman við hann og dæma okkur eftir
honum, þó okkur takist það aldrei til fulls. Þó við getum ekki
eignað þessum fyrirmyndum [Ideale] hlutlægan veruleika
(tilvist) þá skyldi ekki líta á þær sem hugaróra, enda sjá þær
skynseminni fyrir mælikvarða [Richtmass] sem hún kæmist
ekki af án.* 1
Þessi kafli er kannski svolítið tormeltur. Skilja má þó að
Kant er að segja frá einhvers konar hugsjón eða hugmynd um
fullkominn mann sem fólk notar fyrir mælikvarða eða fyrir-
mynd til að það geti gert sér ljósan eigin ófullkomleika og bætt
sig.
Af umfjöllun Kants um hugmyndir [Ideen] og fyrirmyndir
[Ideale] skynseminnar er ljóst að hann lítur á skynsemina sem
þá sálargáfu okkar sem leitar fullkomnunar á öllum sviðum: í
vísindunum krefst hún einingar og dýpri náttúrulögmála sem
skýrt geta og tengt þau sem þekkt em af reynslu og skilningi
[Verstand]; á sviði mannlegra samskipta krefst hún fullkomins
réttlætis, friðar og frelsis og hún krefst þess af hverjum manni
að hann fylgi fordæmi hins fullkomna manns. Skynsemin er
aldrei ánægð með þann heim sem við þekkjum af reynslu. Hún
* Allar tilvitnanir í rit Kants önnur en Gagnrýni hreinnar skynsemi vísa
til bindis og blaðsíðu í heildarútgáfu Konunglegu Prússnesku Aka-
demíunnar á verkum hans. Tilvitnunin í Gagnrýni hreinnar skynsemi
vísar til blaðsíðutals í fyrstu útgáfu.
1 Immanuel Kant-.Gagnrýni hreinnar skynsemi [Kritik der reinen
Vernunft] 569.
58