Búnaðarrit - 01.01.1915, Qupperneq 11
BÚNAÐARRIT
frá fyrstu hendi. Þetta er heldur ekkert ónáttúrlegt,
því að óeðlileg fóstur eru til í öllum flokkum lifandi vera.
Hve mörg egg, vansköpuð frá fyrstu hendi, eru í hreiðri,
er ómögulegt að segja; þau þekkjast ekki úr, nema þau
smáu og þau geysistóru. En það verða fleiri egg fúl
en þau, sem í fyrstu eru vansköpuð. Eitt af því, sem
eg hygg að valdi mestu um myndun fúlla eggja, er
þetta: Mörgum, sem ganga í varp — sérstaklega þó
unglingum — hættir við að handleika eggin að óþörfu ;
þeir taka þau upp og velta þeim á ýmsa enda, til að
skygna þau eða skoða. En þetta hygg eg að drepi lifið
í egginu, meir en flest annað.
Það er öllum mönnum vitanlegt, þeim er einhvern
tíma hefir séð fuglshreiður með eggjum í, að öll eggin
liggja á hliðinni; snýr þá mjói endinn inn að miðju
hreiðursins og liggur venjulega ofurlítið lægra en digri
endinn. Þetta veltur þó á ýmsu með æðunum, þegar
mörg egg eru í sama hreiðri; en þegar þau eru ekki
tleiri en 5 eða 6, mun þetta vera óbriðgul regla. Þessi
lega eggjanna, sem eg áður nefndi, er þá sú eina eðli-
lega lega þeirra. En þegar verið er að taka eggin upp
og stafnstinga þeim á ýmsa vegu, þá kemst innihald
eggsins í óeðlilegar stellingar; og eg hygg, að ekki þurfi
nema örfá augnablik til að drepa lífsþroskann, eða lifið
sjálft, sem í egginu felst. Vér vitum það, að oft þarf
ekki nema eitt lítið æðarslit, til að deyða fullorðinn
manninn ; og þá getum vór gizkað á, að harkaleg með-
ferð á egginu muni geta valdið dauða þess veika lífs,
sem er að byrja í því.
Eg vil í sambandi við þetta minnast á þann voða-
lega ijóta sið, er sumir hafa, að stinga eggjum niður í
vatn, til þess að vita hvort þau sé unguð eða ekki. Só
eggið ungað, þá drepa þeir ungann með þessu; sé eggið
ekki ungað, þá er þó ekki til neins að láta það í hreiðrið
aftur; það verður tæplega nokkurn tíma ungi úr því eggi.
Snöggur mismunurinn hitans og kuldans drepur einhvern