Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 36

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 36
30 BÚNAÐARRIT og gera að vetraratvinnu. En nú eru stakkgarðar orðnir óþektir í mörgum hóruðum landsins. Langsóttur hey- skapur gerir aðalástæðuna til þessarar aðferðar, og er langt frá því að sú ástæða sé enn fallin niður. Hér kemur til athugunar aukakostnaður við stakk- garðinn, ásamt vetrarflutningum, á móti því, hvort ekki mætti fækka brúkunarhestum, ef sett, væri hið lang- sóttasta af heyaflanum í stakkgarða, einnig vinnan við sumarflutninginn, sem víða væri róttara að miða við, hvað mikið sú vinnuskifting gæti aukið heyaílann, en kaupverð dagsverkanna ; því að hvert dagsverk, sem unnið er að heyskap, þarf að bera arð fram yfir það, sem til þess er kostnð. Eg hefi séð Mosfellssveitarmenn þekja hey sín með einföldum ódýrum st.riga, og telja þeir að heyin verjist vel undir honum. Aðferð þessi gæti verið ódýr og hentug, þar sem gerðir væru stakkgarðar. Lótt væri að verja skepnum stakkgarðana, með því að girða vel í kringum þá með vírneti eða gaddavír. Ef hægt væri að setja stakkgarðana í samband við þurkvellina, sem eg mintist á áður, og ef hægt, væri að koma því svo fyrir, að aldrei þyrfti að binda heyið, þá mælti það mjög með þessari aðferð. V. Hlööur. Öllum ber saman um, að þær flýti fyrir að koma heyjunum fyrir að sumrinu, en aftur á móti eru mjög skiftar skoðanir um það, hvort hey verjist betur skemd- um í hlöðum en tóftum, og mun það stafa af því, hvað þær eru víða ófullkomnar. Það sem mér virðist venju- lega ekki athugað nægilega, þegar bygðar eru hlöður, er í stuttu máli þetta: Að botninn sé svo gerður, að vissa sé fyrir, að vatn drepi ekki upp í heyið, því að það er sannreynt, að hætt er við hita í heystæðum, þar sem botninn er rakur. Allir menn, sem við heygjöf hafa fengist, kannast

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.