Búnaðarrit - 01.01.1915, Side 43
Hugleiðingar um fóðurkaup,
fjárrækt o. fl.
Út af ýmsu, sem mér kom til hugar á ferð minni
til Skotlands í sumar sem leið, rita eg línur þær, sem
hér fara á eftir.
Innflutt skepnut'óður.
Það nemur alls ekki svo litlum peningum, sem
flutt er af þessari vöru hingað til landsins. Það fer ár-
lega vaxandi, eftir því sem kvikfé eykst í bæjum og
þorpum. En vegna þess að ekki er nema sumt af þessari
vöru greint frá algengri matvöru, er ekki hægt að finna
heildarverðið.
Á landssýningunni, er haldin var 1 HaiuicJc á Skot-
landi í sumar 14.'—17. júlí, voru meðal annars til sýnis
margskonar fóðurtegundir. Kom mér þá til hugar, hvort
ekki mætti velja úr þeim hentugri og ódýrari tegundir
en þær, sem við nú höfum og flytjum inn.
Skal nú greint frá, hvers eg varð visari um þetta,
og á hvern hátt.
Hjá landbúnaðarháskólanum í Edinborg fékk eg töflu,
er sýnir næringarefni og meltanleg næringarefni allra
fóðurtegunda, sem þekt eru og not.uð eru í brezka ríkinu.
Eftir þeirri töflu reiknaði eg svo út fóðureininga-innihald
hverrar tegundar. Síðan fékk eg mér verðlista hjá
fóðurvöruverzlun, sem hefir eina afgreiðslu sína í Leith,
J. & J. Gunningham, 44 Bernard Street, Leith. Þessi
verzlun hafði langflestar fóðurtegundir til sýnis á lands-
sýningunni. Eft.ir þessum verðlista gat eg svo fundið verð
fóðureininga hverrar tegundar.